Bókatíðindi - 01.12.1996, Blaðsíða 26
Islensk skáldverk
leika eru ekki alltaf ljós.
160 blaðsíður.
Ormstunga
ISBN 9979-63-007-8
Leiðb.verð: 3.190 kr.
ENGAR SMÁ SÖGUR
Andri Snær Magnason
Hér fer tilveran á hvolf
hjá ýmsu fólki í þessum
hugkvæmu smásögum
sem einkennast af miklu
ímyndunarafli og góðum
húmor. Fyndinn og fersk-
ur höfundur.
110 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1418-4
Leiðb.verð: 1.980 kr.
i
FUGL
Á GARÐSTAURNUM
og fleiri stnásögur
VdkaHeigafeil
!
FUGLÁGARÐ-
STAURNUM OG FLEIRI
SMÁSÖGUR
Halldór Laxness
Hér hefur verið safhað
saman nokkrum smá-
sagnaperlum Halldórs
Laxness. Nóbelsskáldið
fer hér á kostum: Stíl-
snilldin er einstök, gam-
ansemin ísmeygileg en
undir kraumar alvaran.
80 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0357-9
Leiðb.verð: 695 kr.
GRAFAR-JÓN OG
SKÚLI FÓGETI
Saga úr Skagafirði frá
18. öld
Björn Jónsson,
læknir
BJÖRN jÓNSSON. LÆKNIR
GRAÍAR-JÓN
OGSKÚLI FÓGETI
Saga úr Sbagafiröi frá 18. óU
Björn Jónsson, læknir í
Kanada (Bjössi bomm),
sem lést í febrúar 1995, er
þekktur fyrir endurminn-
ingar sínar, Glampar á
götu og Þurrt og blautt að
vestan. Bókin er söguleg
skáldsaga sem segir frá
Grafar-Jóni, kotbónda í
Skagafirði, sem fór
ótroðnar slóðir. Hann og
kona hans tóku að sér
mörg munaðarlaus böm
og ólu upp, en kunnastur
er Grafar-Jón fyrir það, að
hann, líkt og Hrói höttur,
stal frá þeim ríku og gaf
þeim fátæku.
Guðmundur Hansen,
sagnfræðingur, bjó bók-
ina til prentunar og
Jóhannes Geir, listmálari,
bróðir Björns, mynd-
skreytti.
187 blaðsíður.
Skjaldborg ehf.
ISBN: 9979-57-311-2
Leiðb.verð: 3.480 kr.
HRAFNKELS SAGA
FREYSGOÐA
í útgáfu Halldórs
Laxness
Hrafnkels saga Freys-
goða er í hópi þekktustu
Islendinga sagna. Hér er
hún í útgáfu Halldórs
Laxness frá 1942 en þá
var hún fyrst gefin út
með nútímastafsetningu.
Söguleg útgáfa.
80 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0351-X
Leiðb.verð: 695 kr.
101 REYKJAVÍK
Hallgrímur Helgason
Hlynur Björn, maður á
fertugsaldri sem ennþá
býr í móðurhúsum, tekur
sig einn daginn til og hef-
ur afdrifarík áhrif á líf
allra í kringum sig með
því að víxla nokkrum
pillum... Drepfyndin,
berorð og kraftmikil bók
sem fangar tíðarandann.
Hallgrímur Helgason
vakti mikla athygli fyrir
síðustu bók sína, Þetta er
allt að koma, og margvís-
legt uppistand annað í
menningarlífinu.
384 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1476-1
Leiðb.verð: 3.680 kr.
Guðmundur
Anári Thorsson
ÍSLANDSFÖRIN
Guðmundur Andri
Thorsson
Skáldsaga sem lögð er í
munn ungum enskum
aðalsmanni sem heldur
til Islands á seinni hluta
19. aldar. Hann sér land-
ið í ljóma hugsjóna sinna,
en innst inni veit hann
að eitthvað meira og per-
sónulegra dregur hann á
vit þessa hrjóstruga
eylands, og tengist fortíð
hans og uppruna. Fáir rit-
höfundar hafa jafn örugg
tök á máli og stíl og Guð-
mundur Andri, og hér
hefur hann samið ferða-
sögu sem heillar lesand-
ann til sín.
192 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1475-3
Leiðb.verð: 3.480 kr.
ÍSLANDSKLUKKAN
Halldór Laxness
Islandsklukkan segir
mikla örlagasögu af Jóni
Hreggviðssyni, Snæfríði
íslandssól og Arnasi
Arnæusi. Þetta er mikil-
fengleg túlkun á ein-
hverju myrkasta skeiði
íslandssögunnar en jafn-
framt stórkostleg saga af
eftirminnilegum einstak-
lingum. Tvær nýjar út-
gáfur, önnur innbundin,
hin kilja.
457 blaðsíður ib.
436 blaðsíður kilja.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0047-2 ib.
/-0182-7 kilja
Leiðb.verð: 3.980 kr.ib.
1.390 kr. kilja.
ÍSLENDINGUR Á
VÍGASLÓÐ
Einar Björgvinsson
Sönn saga og skáldskap-
26