Bókatíðindi - 01.12.1996, Qupperneq 58
Bœkur almenns efnis
ÍSLAND FYRIR
ALDAMÓT
Frank Ponzi
Þýöing: Hjörtur Pálsson
Þetta safn ljósmynda
sem lítt hafði verið vitað
um í meira en öld en
nýlega kom í leitirnar,
bregður nýrri birtu á
dimmt og dapurlegt
skeið Islandssögunnar.
Myndirnar eru meðal
fyrstu ljósmynda sem
teknar voru af Islandi og
Islendingum og segja
áhrifamikla sögu og sýna
ljóslifandi tímabil þegar
brugðið gat til beggja
vona um lífið í landinu -
tíma sem nú mega heita
gleymdir. Með íslensk-
um og enskum texta.
180 blaðsíður.
Brennholt
ISBN 9979-60-182-5
Leiðb.verð: 7.500 kr.
ÍSLENSK BÓK-
MENNTASAGA III
Árni Ibsen, Gísli
Sigurðsson, Matthías
V. Sæmundsson, Páll
Valsson, Silja
Aöalsteinsdóttir og
Viðar Hreinsson.
Ritstjóri: Halldór
Guðmundsson
Stórvirki um íslenska
bókmenntasögu, tímabil-
ið 1750-1918. Hér er
fjallað um upplýsinga-
menn eins og Eggert
Olafsson og Magnús
Stephensen, um Fjölnis-
menn og Verðandi, um
sálmaskáldskap og leikrit-
un, um upphafstíma ís-
lensku skáldsögunnar og
tíma þjóðsagnasöfnunar.
En hér er líka sagt frá
þeim sem stóðu utan við
strauma tímans, þeim
sem ekki er að finna í
hefðbundnum bók-
menntasögum og frá ís-
lensku bókmenntalífi í
Vesturheimi. Bókin er
vegleg og prýdd fjölda
mynda.Fjrrsta bindi Bók-
menntasögunnar hlaut á
sínum tíma íslensku bók-
menntaverðlaunin.
1000 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-908-3
Leiðb.verð: 6.980 kr.
ÍSLENSK LEIKLIST II
Sveinn Einarsson
Hér er framhald íslenskr-
ar leiklistar I sem út kom
hjá Menningarsjóði 1991.
Rakin er framvindan til
ársins 1920. Sagt frá frum-
herjunum í íslenskri leik-
list, hinum fyrstu lista-
mönnum íslensks leik-
sviðs og leikskáldunum
sem gerðu garðinn frægan
- líka erlendis. Um alda-
mótin virðist leiklistinni
hafa vaxið fiskur um
hrygg og leikfélög spruttu
upp um allt land í eins
konar menningarlegri
sprengingu. Bókin er kær-
komin öllum sem láta sér
annt um leiklist.
500 blaðsíður.
Hið ísl. bókmenntafélag
ISBN 9979-804-97-1
Leiðb.verð: 5.500 kr.
ÍSLENSKT MÁL
Gísli Jónsson
Hinn landsþekkti ís-
lenskumaður Gísli Jóns-
son hefur valið úrval ís-
lenskuþátta sinna úr
Morgunblaðinu og koma
þeir hér á prenti. Þetta er
ómissandi rit öllum þeim
er unna íslensku máli. ít-
arlegar atriðaorða- og
nafnaskrár eru í bókinni.
Formála rita Haraldur
Bessason, Matthías Jo-
hannessen og Tryggvi
Gíslason.
303 blaðsíður.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 9979-9078-4-3
Leiðb.verð: 3.990 kr.
JÓLASÖNGVAR
Ritstjóri: Gylfi
Garöarsson
93 sígild jólalög og 118
textar við þau. Nótubók
og vasabók með textum
(880 kr.).
112 blaðsíður.
NótuÚtgáfan
ISBN 9979-9214-2-0
Leiðb.verð: 1.880 kr.
KALDAL-
ALDARMINNING
Gullfalleg bók sem gefin
er út í tilefni þess að öld
er liðin frá fæðingu Jóns
Kaldals ljósmyndara. Sagt
hefúr verið að Kaldal hafi
skapað sumum þekktustu
listamönnum þjóðarinnar
ímynd en meðai mynd-
efna á löngum ferli hans
voru t.d. Jóhannes Kjar-
val, Steinn Steinarr, Ásta
Sigurðardóttir og Thor
Vilhjálmsson.
I bókinni eru um 120
ljósmyndir, allar myndir
metaðsóknarsýningarinn-
ar Kaldal - Áldarminn-
ing. Einnig ítarleg og
skemmtileg ritgerð um
ljósmyndarann eftir Einar
Fal Ingólfsson, mynd-
stjóra Morgunblaðsins.
Ensk þýðing fylgir í sér-
hefti.
112 blaðsíður.
Jón Kaldal HI
Dreifing Bjartur
ISBN 9979-60-237-6
Leiðb.verð: 2.890 kr.
KONA VERÐUR TIL
Um skáldsögur
Ragnheiðar Jónsdóttur
fyrir fullorðna
Dagný Kristjánsdóttir
I bókinni er m.a. fjallað
um Þórubækur Ragnheið-
ar Jónsdóttm og dregnar
inn í umræðuna kenning-
ar um kynmenningu, sál-
greiningu og sögu. Fjallað
er um viðtökurnar við
bókum Ragnheiðar og
hina þversagnakenndu
menningarumræðu eftir-
stríðsáranna. Kona verður
til er fyrsta doktorsrit-
gerðin um íslenskar
kvennabókmenntir.
451 blaðsíða.
Bókmenntafræðistofnun
HI og Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-138-5
Leiðb.verð: 3.500 kr.
Bók erbestvina
58