Bókatíðindi - 01.12.1996, Blaðsíða 62
Bœkur almenns efnis
HHRRA ^ FORSETI
/g % v' ! v
í í 1 I
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
forseti lýöveldisins
Pálmi Jónass
I bókinni er litið yfir ævi-
feril nýkjörins forseta Is-
lands, Ólafs Ragnars
Grímssonar. Fjallað er um
uppvöxt hans á ísafirði,
skólagöngu í MR og
Manchester, fjölmiðla-
manninn Ólaf Ragnar og
fræðimanninn. Meginefni
bókarinnar er þó leið hans
til áhrifa innan íslenskra
stjórnmála úr Framsókn-
arflokknum í gegnum
Möðruvallahreyfinguna
og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna yfir í AI-
þýðubandalagið. Þar var
hann óvænt kjörinn for-
maður flokksins og settist
fljótlega í stól fjármálaráð-
herra. Að lokum er að-
draganda forsetakosning-
anna lýst ítarlega. Bókin
er nauðsynlegur upplýs-
ingabrunnm öllum al-
menningi. Bókin er prýdd
Ijölda mynda.
173 blaðsíður.
Una - bókaforlag
ISBN 9979-9169-6-6
Leiðb.verð: 3.490 kr.
P A 1 0 R A I A
(SLAND ICELAND ISLAND
PANORAMA
Páll Stefánsson
Þýöing: Gary Wake og
Gudrun M.H.KIoes
Aldrei hafa víðáttur Is-
lands notið sín betur í
bók en hér, þar sem við
blasa glæsilegar ljós-
myndir Páls Stefánsson-
ar, yfir 60 cm breiðar.
Fáir þekkja landið betm
en Páll og á ferðum sín-
um um þéttbýli, eyðidali,
öræfi og kunnar ferða-
mannaslóðir hefur hon-
um á einstæðan hátt tek-
ist að fanga undur þess
og fegurð. Ljósmyndir
hans gera okkm kleift að
njóta íslenskrar náttúru
hvar sem við erum stödd
í heiminum.
Texti bókarinnar er á
þremur tungumálum, ís-
lensku, ensku og þýsku.
128 blaðsíður.
Iceland Review
ISBN 9979-51-105-2
Leiðb.verð: 3.900 kr.
PÍSLARVÆTTI
SJÚSJANÍK
DROTTNINGAR
Jakob Khútsesi
Myndir: Dali Mughadze
Þýöing: Grigol
Matsjavariani og
Pjetur Hafstein
Lárusson
Bók gefin út í íslandsvinar-
ins mikla, Geoigíumanns-
ins Grigol Matsjavariani
sem lést á árinu.
minningu Sjúsjaník
drottning lifði á 5. öld,
eiginkona mikils höfð-
ingja sem kastaði krist-
inni trú og tók upp elds-
dýrkun til að afla sér
stuðnings Persakonungs.
En hún neitaði að fylgja
honum. Það kostaði hana
miklar þjáningar og út-
skúfun, en í kærleikan-
um til Krists vann Sjúsj-
aník sigm á dauðanum,
var tekin í dýrlingatölu
og er enn í dag dýrkuð
sem þjóðarhetja og sam-
einingartákn Georgíu-
manna.
Sérlega var vandað til
þessarar útgáfu, fengin
georgísk listakona til að
myndskreyta bókina, og
bandið allt hið fegmsta.
78 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-289-8
Leiðb.verð: 2.480 kr.
PÚKINN OG
FJÓSAMAÐURINN
og fleiri íslenskar þjóö-
sögur
Sverrir Jakobsson
valdi og bjó til
prentunar
Hér birtast margar af
kunnustu þjóðsögmn sem
gengið hafa í munnmæl-
um mann fram af manni
á Islandi.
80 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0361-7
Leiðb.verð: 695 kr.
Saltfiskur
í sögu þjóðar
SALTFISKUR í SÖGU
ÞJÓÐAR l-ll
Saga íslenskrar salt-
fiskframleiðslu og
verslunar frá 18. öld
til okkar daga
Valdimar Unnar
Valdimarsson
Meöhöf. og ritstjóri:
Halldór Bjarnason
Samið að tilhlutan SÍF.
Fyrra bindi rekm sög-
una fram undir síðari
heimsstyrjöld og er sagt
ffá því þegar saltfiskverk-
un efldist á 18. öld og
ruddi til hliðar skreiðar-
verkun á 19. öld. Lýst er
meðhöndlun og verkun,
verslunarháttum og
mörkuðum. Síðara bindi
rekm söguna til 1992 og
þær breytingar sem nýir
tímar og kringumstæður
skópu hinni gamalgrónu
atvinnugrein. Sagt er frá
tilkomu nýrra afurða og
breyttum þörfum neyt-
enda. Fjölmargar ljós-
myndir prýða bókina.
Tvö bindi, samtals um
700 blaðsíður.
Hið ísl. bókmenntafélag
ISBN 9979-804-60-2
Leiðb.verð: 7.980 kr.
SAMHENGI OG
SAMTÍÐ l-lll
Fjóröi og síðasti flokk-
ur heildarútgáfu rita
Sigurðar Nordals
Umsjón með útgáf-
unni: Jóhannes Nordal
Áður út gefið af AB: Mann-
lýsingar I-III 1986; List og
lífsskoðun I-III 1987; Foin-
ar menntir I-III1993.
í þessum síðasta hluta
af ritsafni Sigmðar Nor-
dals eru fyrirferðarmestir
áðm óprentaðir háskóla-
fyrirlestrar um íslenska
bókmenntasögu 1350-
1750. Það sætir tíðindum
að fyrirlestrar þessir birt-
ist nú, því þeir hafa verið
umtalaðir í áratugi. Auk
þess er hér að finna fjöl-
62