Bókatíðindi - 01.12.1996, Qupperneq 69
Ævisögur og endurminningar
AE0NS
etit
BARN
Steven W. Mosher
AÐEINS EITT BARN
Stephen W. Mosher
Þýöing: Björn Jónsson
Sönn saga sem fjallar um
unga konu í Kína, Chi
An, sem tekur þátt í að
þvinga konur í fóstureyð-
ingu allt fram á níunda
mánuð því að þær mega
aðeins eignast eitt bam.
Chi An verður síðan fyrir
því að verða sjálf ófrísk
að sínu öðru barni. Hún
flúði til Bandaríkjanna og
sagði einstæða sögu sína
þar.
328 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0371-4
Leiðb.verð: 2.680 kr.
AFRÍKUDÆTUR
Hrönn Sigurðardóttir
Bókin er lifandi og per-
sónuleg og lætur engan
ósnortinn. Hún hefur að
geyma frásögur af gleði
og sorg í lífi höfundar og
þeirra dætra Afríku sem
hún kynntist er hún var
kristniboði og hjúkrunar-
fræðingur í Kenýu í tæp
átta ár. Við fáum að skyggn-
ast inn í líf sem er frá-
Hrönn Siguróardóttir
/
Frásögur af lífi og starfi
við miðbaug
brugðið lífi okkar og
menningarheim sem er
gjörólíkur því sem við
eigum að venjast. Lífsbar-
átta kvennanna, slæm fé-
lagsleg staða þeirra, bág
kjör og erfitt hlutverk í
samfélagi karla er áber-
andi, en einnig ný von og
framtíð. Afríkudætur er
bók sem hrífur lesandann
með sér.
144 blaðsíður.
Salt ehf.
ISBN 9979-9225-2-4
Leiðb.verð: 2.480 kr.
ARABÍUDÆTUR
Jean P. Sasson
Þýðing: Álfheiður
Kjartansdóttir
Sjálfstætt framhald met-
sölubókarinnar I fjötrum
sem kom út fýrir nokkru.
Hér segir frá prinsessu í
Sádi Arabíu og þeim
hlekkjum sem hún býr
við. Hún leggur sig í
mikla hættu með að upp-
lýsa Vesturlandabúa um
kjör kvenna í heimalandi
sínu því að við slíku ligg-
ur dauðarefsing. Bók sem
kemur okkur öllum við.
240 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-0326-9
Leiðb.verð: 2.480 kr.
Lífesaga Myriara Bat-Yosef
ÁFLUGSKÖRPUM
VÆNGJUM
Oddný Sen
Sennilega hefur aldrei
birst á íslandi eins hrein-
skiptin og hispurslaus
ævisaga. Listakonan
Myriam Bat-Yosef dregur
ekkert undan þegar hún
rekur ótrúlegt lífshlaup
sitt. Hún segir frá upp-
vexti sínum í ísrael þar
sem helfararvofan var í
hverju horni, frá listaferli
sínum, flakki milli landa
og leit sinni að hinum
andlegu verðmætum og
jafnvægi í lífi sínu. Hún
segir opinskátt frá
stormasömu hjónabandi
sínu og Errós, frá dvöl
sinni á Islandi og kynn-
um af Islendingum. I
bókinni eru fjölmargar
ljósmyndir.
368 blaðsíður.
Fróði
ISBN 9979-802-58-8
Leiðb.verð: 3.990 kr.
tiáJlmiibokl'
Á MILLI
LANDSHORNA
n
Á MILLI
LANDSHORNA II
Sigurður
Sigurmundsson
Bókin er framhald fyrri
bókar með sama nafni
um ævi höfundar til 17
ára. Mun hún fylgja með.
Þessi bók lýsir veru í
Hólaskóla og síðan lausa-
og vinnumennsku höf-
undar í tíu ár þar til hann
hóf búskap. Fjöldi fólks
kemur við sögu, þ.á.m.
landskunnir menn svo
sem Steingrímur Stein-
þórsson og Jörundur
Brynjólfsson.
100 blaðsíður.
Sigurður
Sigurmundsson
ISBN 9979-60-243-0
Leiðb.verð: 2.200 kr.
Á VAKTINNI
Steinar J. Lúðvíksson
Ævisaga Hannesar Þ.
Hafstein sem er þjóð-
þekktur maður fyrir störf
sín fyrir Slysavamafélag
Islands en hann var þar
fyrst erindreki, síðar
framkvæmdastjóri og
loks forstjóri. f bókinni
segir Hannes frá upp-
vaxtarárum sínum á
sýslumannsheimilinu á
Húsavík, frá ævintýrum
er hann var hjá banda-
rísku Strandgæslunni, frá
farmennskuárum sínum
hjá Eimskipafélaginu og
rekur einnig starf sitt hjá
SVFÍ og eftirminnilega
atburði sem hann upp-
lifði þar, auk þess sem
hann fjallar um söguleg
starfslok sín hjá félaginu.
392 blaðsíður.
Fróði
ISBN 9979-802-34-0
Leiðb.verð: 3.990 kr.
69