Bókatíðindi - 01.12.1996, Blaðsíða 76
Ævisögur og endurminingar
Þeir
vörðuðu
veginn
ÞEIR VÖRÐUÐU
VEGINN
Unnur Karlsdóttir og
Stefán Þór
Sæmundsson
Hér segir frá þremur ein-
staklingum sem allir
settu mark sitt á akur-
ejrskt samfélag og þjóð-
arsöguna. Fjallað er um
hinn nafntogaða skip-
stjóra og útgerðarmann
Vilhelm Þorsteinsson,
lýst græskulausu gamni
um borð í síðutogurun-
um, frækilegu björgun-
arafreki og baráttunni
íyrir framtíð ÚA. í öðrum
þætti er ævi Ingimars
Eydals í brennipunkti.
Hér skyggnumst við á
bak við tjöldin. Sjallaárin
lifna við, kennarinn stíg-
ur frarn og stjórnmála-
maðurinn lýsir vonbrigð-
um sínum. Gunnar Ragn-
ars er þriðji maðurinn.
Hér segir hann hrein-
skilnislega frá lífsbaráttu
sinni, sigrum og ósigrum,
vinnuþrældómi og veik-
indum. „Eg segi þessa
sögu mína öðrum til við-
vörunar", eru orð Gunn-
ars og hann dregur ekkert
undan.
290 blaðsíður.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 9979-9078-5-1
Leiðb.verð: 3.440 kr.
ÞJÓÐSÖGURJÓNS
MÚLA ÁRNASONAR
Jón Múli Árnason
Þetta er bókin um það
sem bar fyrir augu sagna-
þularins Jóns Múla Áma-
sonar þegar hljóðneminn
heyrði ekki til. Hér eru
sagðar kímilegar og dular-
fullar útvarpssögur og
margskonar aðrar sögur í
bland við pólitískar mein-
ingar. í þjóðsögum Jóns
Múla fer saman leiftrandi
húmor og hjartahlýja, ein-
stæð mannþekking og
ósvikin lífsnautn.
352 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-1462-1
Leiðb.verð: 3.880 kr.
ÞÓRÐUR í HAGA
Hundrað ára einbúi
Óskar Þórðarson
Þórður segir frá erfiðum
frumbúskap í Haga, þeg-
ar hann kom þar á órækt-
aða jörð með litlu hús-
næði. Lýst er þrotlausri
baráttu við óblíð náttúru-
öfl á ferðalögum og í
smalamennsku, björgun
úr lífsháska í Skorradals-
vatni, húsbruna í Haga
en þaðan bjargaðist hann
á lítt skiljanlegan hátt.
Halldóra Guðjónsdóttir
eiginkona hans stóð við
hlið bónda síns í blíðu og
stríðu og saman erjuðu
þau þessa harðbýlu
kotjörð af ótrúlegri þraut-
seigju og nægjusemi.
Saga Þórðar í Haga lýsir
lífi og störfum bóndans,
sem lét ekki baslið buga
sig.
158 blaðsíður.
Hörpuútgáfan
ISBN 9979-50-083-2
Leiðb.verð: 2.980 kr.
ISAK HAHÐARSON
Weptiépi
ÞÚ SEM ERT Á HIMN-
UM - ÞÚ ERT HÉR
ísak Harðarson
I áhrifamikilli játningu
lýsir höfundur leit sinni
að sálarfriði og tilgangi í
lífinu, leit sem er svo ár-
angurslaus að hann gerir
sér loks grein fyrir því að
hann veit og getur ekki
neitt. Þá hrópaði hann út
í tómið ef vera kynni að
einhvers staðar væri til
raunverulegur Guð sem
bæri umhyggju fyrir hon-
um ... Og hvílíkt svar!
Persónuleg frásaga ljóð-
skáldsins góða af leitinni
að lífshamingju, borin
uppi af einlægni, sjálfs-
gagnrýni og glettni.
210 blaðsíður.
Forlagið
ISBN 9979-53-301-3
Leiðb.verð: 2.480 kr.
ÆÐRULAUS MÆTTU
ÞAU ÖRLÖGUM SÍNUM
Frásagnir af eftirminni-
legum atburöum og
skemmtilegu fólki
Bragi Þórðarson
I þessari bók eru tólf
þættir úr íslensku þjóð-
h'fi. Höfrmdur segir m.a.
frá atburðum sem tengjast
fjölskyldu hans, þegar
amma hans, sem var
ekkja með tíu böm, missti
allt sitt. Þá rifjar hann
upp æskuminningar frá
Akranesi. Sagt er frá
læknisaðgerðum við erf-
iðar aðstæður, samgöng-
um og svaðilförum á
landi og sjó, dugmiklum
skipstjórnarmönnum,
réttum og réttaferðum,
verkalýðsbaráttu, skottu-
læknum og hómópötum,
brúðkaupssiðum og
skemmtanalífi, og einnig
sérstæðasta fréttaritara
landsins fyrr og síðar
„Oddi“ á Akranesi.
237 blaðsíður.
Hörpuútgáfan
ISBN 9979-50-078-6
Leiðb.verð: 3.280 kr.
76