Bókatíðindi - 01.12.2001, Side 42
íslensk skáldverk
undar feikivel eins og
stuðningsmenn vita frá
síðustu leiktíðum.
96 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2260-8
Leiðb.verð: 3.490 kr.
FRÁ LJÓSI TIL LJÓSS
Vigdís Grímsdóttir
Leitin að hamingjunni og
draumurinn um betri
daga er sá drifkraftur sem
knýr verkið í nýrri skáld-
sögu Vigdísar Grímsdótt-
ur, Frá ljósi til ljóss.
Lenni, Róbert, Rósa og
fleiri sögupersónur eiga
sér ótal leyndarmál og
heitar óskir. En undir
niðri togast andstæðurn-
ar á, sannleikurinn og
lygin, lífið og dauðinn.
Hver um sig gerir sitt
besta í því völundarhúsi
sem tilveran getur verið -
þar sem enginn veit hvað
býr handan hornsins. Og
leit höfundarins að leið-
um til að tjá þá óvæntu
stefnu sem lífið kann að
taka kemur lesandanum
sífellt á óvart.
196 bls.
Iðunn
ISBN 9979-1-0439-2
Leiðb.verð: 4.480 kr.
GRAFARÞÖGN
Arnaldur Indriðason
Ný spennusaga eftir met-
söluhöfundinn Arnald
Indriðason. Mannabein
finnast í grunni nýbygg-
ingar í Reykjavík. Lög-
reglan hefur rannsókn og
smám saman skýrist
myndin; fortíðin er graf-
in upp úr moldinni, úr
gömlum pappírum, úr
fylgsnum hugans — og
brotin raðast saman í
helkalda, óvænta harm-
sögu. Trúverðug, spenn-
andi og áhrifamikil
glæpasaga.
295 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1575-5
Leiðb.verð: 4.280 kr.
GÆLUDÝRIN
GÆLUDÝRIN
Bragi Ólafsson,
Bragi Olafsson sendi fyr-
ir tveimur árum frá sér
skáldsöguna Hvíldar-
daga sem vakti mikla
athygli og var tilnefnd til
Islensku bókmennta-
verðlaunanna og menn-
ingarverðlauna DV.
Gæludýrin er gerólík
saga en Bragi heldur þó
áfram að fjalla um fólk
sem þarf að taka litlar en
mikilvægar ákvarðanir.
Að segja já eða nei er
ekki eins auðvelt og
maður ímyndar sér oft-
ast. Þetta er grátbrosleg
saga um hinn mikla
harmleik sem líf okkar
er.
256 bls.
Bjartur
ISBN 9979-865-95-4
Leiðb.verð: 3.980 kr.
á ý
y
a a
mt i n.} j kjdfi ,nU r
titt tyy tva* &
HAMINGJAN HJÁLPI
MÉR I OG II
Kristín Ómarsdóttir
Varla geta þær kallast
hversdagslegar þótt þær
fjalli um hversdagsleik-
ann, þessar tvær nýju
sögur um náin tengsl
mannfólksins. Isskápur-
inn, sjónvarpið, rúmið
og eldhúsborðið gegna
mikilvægum dramatísk-
um hlutverkum, en aðrir
leikendur eru þau
Albert, Júlfa, Elísabet,
Jóhann, Marteinn og
Rósa. Sögurnar um þau
eru eins konar tvíbura-
systur, alvörugefnar,
fremur hryssingslegar í
viðmóti og ekki allra.
Hér er íslenskur hvers-
dagsleiki tekinn fyrir og
tekinn með valdi á þann
meistaralega hátt sem
Kristínu Ómarsdóttur er
einni lagið.
184 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2259-4
Leiðb.verð: 3.990 kr.
HANN NÆRIST Á
GOÐUM MINNINGUM
Matthías Johannessen
Aleitin skáldsaga eftir
einn fremsta rithöfund
þjóðarinnar, Matthías
Johannessen. Sögumað-
urinn horfir um öxl og
segir frá uppvexti drengs
sem er næmur á um-
hverfi sitt en árið sem
stríðið hefst breytist allt
og hann verður að heyja
sína eigin styrjöld - við
sjálfan sig og aðstæður
sínar.
340 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1579-8
Leiðb.verð: 4.480 kr.
HÁTT UPPI VIÐ
NORÐURBRÚN
Hlín Agnarsdóttir
Þetta er fyrsta skáldsaga
höfundar og er óhætt að
segja að hún fari af stað
af miklum krafti. Þessi
snargeggjaða nútímasaga
greinir frá þerripíunni
Öddu Isabellu sem rekur
mínigeðdeild uppi í
rúmi í svefnherbergi
40