Bókatíðindi - 01.12.2001, Blaðsíða 142
endurmiimiiigar
Ævisögur og
UNDIR KÖLDU
TUNGLI
Átakanleg
uppvaxtarsaga
íslenskrar stúlku
Sigursteinn Másson
Hér er sögð á einstakan
hátt sár og átakanleg saga
úr íslenskum veruleika.
Karólína elst upp í
skugga geðveiki móður
sinnar sem hvílir þungt á
heimilinu. Móðirin beit-
ir litlu dóttur sína sjúk-
legu ofbeldi, jafnt líkam-
legu sem andlegu, sem
skilur eftir djúp sár. Um
leið og fylgst er með
stormasamri æsku Kar-
ólínu er tregaþrungin
saga móðurinnar sögð,
konunnar sem gerði líf
dóttur sinnar óbærilegt.
Saga Karólínu og móður
hennar er sönn saga um
nístandi sársauka og
þrautseiga von.
220 bls.
Almenna bókafélagið
ISBN 9979-2-1591-7
Leiðb.verð: 4.290 kr.
ÚLFAR ÞÓRÐARSON
LÆKNIR
Æviminningar
Unnur Úlfarsdóttir
Ulfar Þórðarson augn-
læknir er löngu þjóð-
kunnur maður eftir 60
ára farsælan feril sem
læknir. Lífshlaup hans er
litríkt og spor hans liggja
víða. Hann var í forystu
fyrir uppbyggingu á
sviði íþrótta- og heil-
brigðismála í Reykjavík
sem borgarfulltrúi í tvo
áratugi, og einn af frum-
kvöðlum flugs á Islandi.
En úr hvernig jarðvegi
kemur maður eins og
Ulfar? Hver er upp-
spretta þessa ótrúlega
lífskrafts og léttleika?
Færri þekkja þá sögu.
Ulfar er einstakur sögu-
maður og hér segir hann
með dóttur sinni, Unni,
frá æskuárum sínum við
óvenjulegar og litríkar
aðstæður. Frá námsárum
sínum í Þýskalandi á
uppgangsárum nasista
og þátttöku í Úlympíu-
leikunum í Berlín árið
1936. Árunum við fram-
haldsnám í Kaupmanna-
höfn og hernámi Þjóð-
verja vorið 1940, dirfsku-
för yfir hafið og heim á
litlum fiskibát, veru
sinni í Færeyjum á árum
síðari heimsstyrjaldar-
innar og upphafi starfs-
ferils síns í Reykjavík
eftirstríðsáranna.
Úlfar er opinskár og
hressilegur og á auðvelt
með að sjá broslegu hlið-
arnar.
336 bls.
Setberg
ISBN 9979-52-269-0
Leiðb.verð: 4.890 kr.
ÖR FÓROM ÞDLÁR
kiiii miiíiSMSícisriiiiDtigiui
ÚR FÓRUM ÞULAR
Pétur Pétursson
Hinn þjóðkunni útvarps-
þulur, Pétur Pétursson,
fer hér á kostum í bráð-
skemmtilegum frásögn-
um af horfnum tíma. 135
þáttum fer hann víða;
segir m.a. frá íslenska
hundinum sem hlustaði
á breska forsætisráðherr-
ann, stúdentasvalli á 19.
öld, fisksölum í Reykja-
vík og íbúum í Vestur-
bænum. Pétur er fræða-
þulur eins og þeir gerast
bestir. Blaðakóngar og
bissnesmenn, höfðingjar
og hefðarfrúr, Ríkarður
Jónsson myndhöggvari
og frú Dinesen í Róm; frá
öllu þessu segir Pétur
svo unun er að lesa. Ur
fórum þular, stórfróðleg
og bráðskemmtileg bók
um ævintýri liðins tíma.
310 bls.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 9979-9509-4-3
Leiðb.verð: 4.980 kr.
ÚR STUNDAGLASINU
Ármann Halldórsson
Úr stundaglasinu nefnir
Ármann Halldórsson
fyrrum kennari á Eiðum
minningaþætti sína, þar
sem hann víkur að sam-
ferðafólki, bæði þekktum
persónum og óbreyttri
alþýðu, í endurminning-
um sínum, sem víða eru
blandaðar hugleiðingum
athuguls manns um and-
leg og veraldleg efni.
Ármann Halldórsson
er afar hagur á íslenskt
mál og minnisstæður
þeim fjölmörgu sem
nutu leiðsagnar hans við
nám í Alþýðuskólanum
á Eiðum á miðbiki síð-
ustu aldar. Bókin er fagn-
aðarefni þeim sem unna
þjóðlegum fróðleik, lif-
andi og vekjandi frásögn,
þar sem fegurð íslenskr-
ar tungu birtist í öllum
sínum fjölbreytileika.
Bróðir Ármanns, Elías
B. Halldórsson listmál-
ari, hefur auðgað bókina
með myndum sínum, en
þeir bræður hafa ekki
áður sameinað list sína í
einu verkefni.
191 bls.
Gullvör ehf.
ISBN 9979-9508-0-3
Leiðb.verð: 4.200 kr.
140