Bókatíðindi - 01.12.2001, Blaðsíða 132
Ævisögur og endurmmningar
mun vekja mikla athygli j
hérlendis og í Ameríku!
280 bls.
Hans Kristján Arnason
- HKÁ
ISBN 9979-9152-5-0
Leiðb.verð: 3.990 kr.
EYÐIMERKURBLÓMIÐ
Waris Dirie
Þýðing: Halla
Sverrisdóttir
Eyðimerkurblómið er
áhrifamikil og sönn met-
sölubók.
Waris Dirie ólst upp
við erfiða lífsbaráttu í
eyðimörkum Sómalíu.
Tólf ára var henni skipað
að giftast sextugum
manni sem hún þekkti
ekkert en þá flúði hún til
Mogadishu og komst síð-
ar til London, þar sem
hún vann kauplaust sem
þjónustustúlka á heimili
föðurbróður síns, sendi-
herra Sómalíu. Þá var
hún „uppgötvuð" af
þekktum ljósmyndara og
hóf ævintýralegan feril
sem heimsþekkt ljós-
myndafyrirsæta.
Waris býr nú í New í
York. Hún starfar enn
sem fyrirsæta, en er auk !
þess sérlegur sendiherra !
Sameinuðu þjóðanna, \
með það að markmiði að j
berjast gegn umskurði :
kvenna. Sjálf mátti War- j
is þola óvenju grimmúð- ;
legan umskurð þegar j
hún var aðeins barn að j
aldri.
Eyðimerkurblómið er j
áhrifamikil frásögn sem
veitir innsýn í bæði dag- j
legt líf sómalskrar hirð-
ingjafjölskyldu og glæsi- j
veröld heimsþekktrar
fyrirsætu. Um leið er
bókin mikilvægur vitnis-
burður um þær þján-
ingar sem umskurður
kvenna hefur í för með
sér.
„Bókin er skrifuð af
einlægni og hlýju og sýn-
ir hvernig harmleikur
einnar konu getur hjálp-
að öðrum.“ - New York
Times
234 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-761-48-2
Leiðb.verð: 3.980 kr.
FRAM í SVIÐSLJÓSIÐ
Endurminningar
Halldórs G. Björnssonar
Björn Ingi Hrafnsson
Halldór hóf ungur störf
að verkalýðsmálum og
gerðist snemma áhrifa-
maður bak við tjöldin.
Það var þó ekki fyrr en
starfsferlinum virtist
vera að ljúka að „silfur-
refurinn" sótti fram í
sviðsljósið. Hann átti
hvað mestan þátt í því að
sameina verkafólk á höf-
uðborgarsvæðinu í eitt
stéttarfélag, leiða ný-
stofnað Starfsgreinasam-
band og hlutast til um
málefni ASÍ um árabil,
enda liggja þræðir Hall-
dórs vfða. Hér lýsir hann
samskiptunum við
Eðvarð Sigurðsson, Guð-
mund J. Guðmundsson
og forystumenn atvinnu-
rekenda og segir frá átök-
um og flokkadráttum af
einstæðu hispursleysi og
innsæi. Einkalífi sínu
lýsir hann líka af lát-
lausri einlægni manns
sem lærði af ósigrum
sínum og fann að lokum
þann styrk sem innra
með honum bjó.
286 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2257-8
Leiðb.verð: 4.490 kr.
HANN VAR KALLAÐUR
„ÞETTA“
Dave Pelzer
Þýðing: Sigrún
Árnadóttir
Hann var kallaður
„þetta" er ógleymanleg
frásögn af hrottalegum
misþyrmingum á barni -
sögð af barninu sjálfu.
Með ótrúlegu hugrekki og
styrk tókst Dave Pelzer að
lifa af andlegt og líkam-
legt ofbeldi móður sinnar.
Drengurinn bjó við
j hrottalegar barsmíðar og
! hungur hjá móður sinni,
drykkfelldri skapofsa-
manneskju sem gerði sér
leik að því að kvelja hann
með öllum hugsanlegum
ráðum og gekk næstum af
honum dauðum. Til að
bjarga lífi sínu lærði Dave
að bregðast við óútreikn-
anlegum uppátækjum
hennar, því að hún leit
ekki lengur á hann sem
afkvæmi sitt heldur arg-
vítugan þræl; hann var
ekki lengur bam, heldur
bara „þetta“.
Þessi nærgöngula og
grípandi saga opnar augu
okkar fyrir þeim blákalda
sannleika að börnum er
misþ^nmt - og það er á
okkar valdi að þar verði
breyting á. Bókin hefur
notið fádæma vinsælda
austan hafs og vestan og
selst í stærri upplögum
en dæmi eru um. Hún var
tilnefnd til hinna virtu
Pulitzerverðlauna.
144 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-761-49-0
Leiðb.verð: 3.480 kr.
INSJALLAH
Á slóðum araba
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jóhanna er flestum
íslendingum fróðari um
málefni landanna fyrir
botni Miðjarðarhafs og
fyrir nokkrum árum hóf
hún nám í arabísku í
130