Bókatíðindi - 01.12.2001, Page 160
Handbækur
handhægu broti með
skýrum og greinargóðum
texta á íslensku, ensku
og þýsku. A bakhlið eru
lýsingar og litmyndir af
helstu sögustöðum
landsins. Sögukortið og
meðfýlgjandi bók eru af-
greidd saman í vandaðri
öskju.
160 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2182-2
Leiðb.verð: 2.900 kr.
SKREFIÐ
TAKTU SKREFIÐ
Susan Jeffers
Þýðing: Regína
Stefnisdóttir
Ertu hræddur við að taka
ákvarðanir... biðja um
launahækkun... slíta
ómögulegu sambandi ...
horfast í augu við það
sem fram undan er? I
þessari bók nálgast Sus-
an Jeffers sálfræðingur
það vandamál sem herjar
á meirihluta mannkyns,
óttann við hið óþekkta.
Skref fyrir skref kynnir
hún lesendum leiðir til
að sigrast á sjálfum sér,
ná betri tökum á því sem
mestan kvíða vekur og
öðlast þar með meiri lífs-
fyllingu. Taktu skrefið er
sjálfshjálparbók sem náð
hefur útbreiðslu víða um
heim á síðasta áratug;
hún hefur verið þýdd á
fjölda tungumála og er
nú loks fáanleg á ís-
lensku.
220 bls.
Iðunn
ISBN 9979-1-0435-X
Leiðb.verð: 3.480 kr.
TANTRA FYRIR
ELSKENDUR
Ann Johnson
Þýðing: Helgi Már
Barðason
Tantra fyrir elskendur
sviptir hulunni af
fornum, austurlenskum
leyndardómi og gerir
nútímalesandanum
kleift að kynnast unaðs-
semdum ástalífsins á
algjörlega nýjan hátt.
Bókin er fagurlega
skreytt ljósmyndum og
lifandi textinn fangar
eftirminnilega hina aust-
rænu speki. Þetta er bók
sem allir elskendur
verða að eignast.
96 bls.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1566-6
Leiðb.verð: 2.980 kr.
TAHCn
NÚTÍÐ - FRAMTÍÐ
TAROT
Nútíð og framtíð
Hera Karlsdóttir
Sú löngun hefur frá örófi
alda fylgt mannfólkinu
að reyna að sjá fram í
tímann og grafast fyrir
um örlög sín. Tarotspilin
eru aldagömul og eiga
sér merkilega sögu í því
samhengi. I þessari bók,
sem ætluð er byrjendum,
er því saga spilanna
stuttlega rakin og getið
um eldri meistara í fræð-
unum. Síðan er spilun-
um lýst, hverju fyrir sig,
og merking þeirra túlkuð
- og að lokum eru sýnd-
ar nokkrar algengar og
einfaldar aðferðir við að
leggja spilin sem auðvelt
og fljótlegt er að lesa úr
þegar búið er að læra
táknin. Hér er á ferð afar
aðgengileg og fróðleg
bók um leyndardóma
tarotspilanna.
125 bls.
Iðunn
ISBN 9979-1-0436-8
Leiðb.verð: 2.980 kr.
Pokahornið
Strandgötu 36 • 460 Táknafjörður
• S. 456 2505 • gestrun@snerpa.is
TAROT
BÓKIN
TAROTBÓKIN
Signý Hafsteinsdóttir
Mjög auðveld og
aðgengileg bók, bæði fyr-
ir byrjendur og lengra
komna. Farið er ítarlega í
öll örlagaspilin, lægri
spilunum lýst á hnitmið-
aðan og auðskilinn hátt
og sýndar eru helstu
lagnir og aðferðir við að
spá.
68 bls.
Signý Hafsteinsdóttir
ISBN 9979-60-468-6
Leiðb.verð: 1.590 kr.
TIL HAMINGJU MEÐ
BARNIÐ!
Símon Jón Jóhannsson
tók saman
í þessu kveri er saman
kominn fróðleikur úr
158