Íslenska leiðin - 01.11.2003, Síða 35

Íslenska leiðin - 01.11.2003, Síða 35
Nú talaðir þú um, í áðurnefndum fyrirlestri, að á tímum aukinnar hnattvæðingar hefði ákvarðanataka erlendis sífelld meiri áhrif á mál sem annars hafa verið afgreidd innanlands. Er staða EES-samningsins í samræmi við þessa fullyrðingu þína, þ.e. er hann að veikjast? Það er alveg Ijóst að við höfum minni og minni áhrif á það sem gerist innan Evrópusambandsins. EES samningurinn tryggði okkur nokkur áhrif á eigin mál, en ég er þeirrar skoðunar að þau fari minnkandi. Ákvarðanir sem eru teknar innan Evrópusambandsins varða okkur miklu. í sumum tilvikum höfum við lítil sem engin áhrif á þá ákvarðanatöku. Þetta eru staðreyndir sem við þurfum að horfast í augu við. Við getum sætt okkur við þetta ástand, en við þurfum jafnframt að íhuga það hvort að ekki sé ástæða til að leita inngöngu í þetta bandalag. Að mínu mati liggur þar engin ósköp á. Ef við viljum hafa meiri áhrif á gang og breytingu mála, þá tel ég að geti fyrst og fremst gerst með aðild. Þú talaðir um það að ísland hefði mælt gegn því að tvær varnarstoðir mynduðust í Evrópu, annars vegar í NATO og hins vegar í ESB. Telur þú að ESB hafi burði til þess að mynda slíka stoð, þar sem enn skortir sameiginlega utanríkis- og öryggismálastefnu? Ég tel að ESB hafi burði til þess. Hins vegar tel ég það óskynsamlegt. Það væri tvíverknaður. Það hefur verið byggt upp ágætis skipulag í Atlantshafsbandalaginu. Evrópusambandið hefur fullan aðgang að því. Það hefur náðst samkomulag um það að Evrópusambandið taki t.d. yfir friðargæsluverkefni á Balkanskaga á grundvelli herstjórnarskipulags NATO. Ég tel að það eigi að vera þannig áfram. Hvernig telur þú að öryggishagsmunum íslendinga verði best tryggðir til frambúðar? Með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu og mjög nánu samstarfi við Evrópusambandið. Við höfum lagt á það áherslu að eiga innkomu í sameiginlega varnar- og öryggisstefnu Evrópu. Ég tel það skipta miklu máli. Við höfum aukið samstarf við Norðurlöndin og nýiegur varnarmálaráðherrafundur Norðurlandanna hér á landi ber þess vitni. Þátttaka okkar í sameiginlegum friðargæslusveitum Norðurlandanna ber þess einnig vitni. Þátttaka okkar í Sameinuðu Þjóðunum skiptir máli og hugsanleg innkoma okkar í Öryggisráðið þjónar öryggishagsmunum íslands. Nú tekur þú við embætti forsætisráðherra eftir rúmt ár. Hvaða verkefni telur þú brýnt að takast á við í því embætti? Ég tel brýnast að viðhalda samstöðu íslendinga um okkar mikilvægustu mál. Ég tel að stöðugleiki skipti mestu, aukinn hagvöxtur sem veiti möguleika á að halda áfram að efla velferðarkerfi og menntakerfi okkar. Ég tel að menntunin skipti meira og meira máli í sambandi við okkar framtíðarhagsmuni. Til þess að sinna því þurfum við auknar tekjur. Við höfum lagt á það mikla áherslu á undanförnum árum að byggja upp öflugt og fjölbreyttara atvinnulíf en áður hefur þekkst. Ég mun halda áfram að vinna á þessum grundvelli. Ég boða engar byltingu en býð fram krafta mína og reynslu. Þá verða liðin rúm þrjátíu ár síðan ég settist á Alþingi. Varnarsamningsmálin virðast hafa bæði verið sinnt af utanríkis- og forsætisráðuneytunum. Myndir þú halda þeirri verkaskiptingu áfram? Öll mál í ríkisstjórn varða forsætisráðherra. Forsætisráðherra kemur við allt sem gerist í ríkisstjórn. Þegar er um vandasöm og mikilvæg mál að ræða, þá koma þau sjálfkrafa inn á borð forsætisráðherra. Þannig að þetta er engin ný verkaskipting, þetta leiðir af eðli máls að oddviti ríkistjórnarinnar þarf ávallt að koma að því sem skiptir mestu máli. Hvernig hefur verið stuðlað að jafnrétti kynja innan nefnda og stofnanna utanríkisráðuneytisins? Það hefur fyrst og fremst verið gert með því að ráða fleiri konur til starfa í utanríkisþjónustunni. Við erum með afar fáar nefndir. Við höfum verið að ráða mikið af nýju fólki og á undanförnum árum hafa konur verið þar í meirihluta. Hér er að vaxa upp öflug kynslóð ungs fólks í utanríkisþjónustunni og meirihluti þessarar ungu kynslóðar eru konur. Hvaða atburðir í störfum þínum erlendis eru þér minnisstæðastir? Hér fyrr á árum var aðkoma mín að hvalamálinu mér minnistæð, þegar ég var sjávarútvegsráðherra. Þá átti ég þess jafnframt kost að vera viðstaddur þegar Gorbachev tók við völdum í Sovétríkjunum, vegna þess að ég var viðstaddur útför Chernenko. Þar voru menn eins og Margret Thatcher, Helmut Kohl og Mitterand, Gandhi, Olof Palme, og fleiri og fleiri. Frú Marcos frá Filippseyjum, Yasser Arafat og Fidel Castro. Þegar ég stóð þarna á Rauða Torginu og leit í kringum mig, þá áttaði ég mig á því á hvað ég væri að horfa. Þetta hefur alltaf verið mér minnisstætt. Það er enginn af þessum einstaklingum enn við völd nema Castro og Arafat að einhverju leyti. Það eru að verða tuttugu ár síðan. Þannig að þessi atburður hefur lifað lengi í huga mér, en auðvitað eru margvíslegir samningar minnistæðir, eins og fiskveiðisamningar, Schengen, samningar um landhelgina við Færeyinga og Grænlendinga, og fleira og fleira. Þetta er orðin nokkuð löng saga en það er mér margt minnisstætt í henni. bls.35

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.