Íslenska leiðin - 01.11.2003, Síða 48

Íslenska leiðin - 01.11.2003, Síða 48
trúarbragða o.s.frv. Slíku yrði ekki til að dreifa ef um blandaðar fjölþjóðasveitir undir merkjum alheims- eða svæðisstofnana væri að ræða. Fyrst og fremst myndu þó slíkar „eigin" sveitir breyta í grundvallaratriðum stöðu og styrk þessara stofnana og gera þær myndugri til að sinna sínum verkefnum. Til stuðnings grundvallarkerfisbreytingum af þessu tagi, sem vissulega eru róttækar og fela í sér algerlega nýja nálgun, þurfa að koma alþjóðasamningar sem taka á brotalömum núverandi kerfis og skapa grundvöll alþjóðlegrar öryggisgæslu af ofangreindum toga. Ber þar fyrst að nefna alþjóðasamning um vopnaviðskipti sem tryggir gagnsæi og fullnægjandi upplýsingagjöf og inniheldur reglur um takmarkanir eða bönn við vopnaviðskiptum þegar aðstæður mæla með slíku. Einnig þarf alþjóðasamning sem felur í sér hvernig herstöðvar ríkja á erlendri grund verði lagðar niður og í framhaldinu bannaðar. Styrkja þarf stríðsglæpadómstólinn og tryggja lögsögu hans yfir þegnum allra ríkja, endurreisa sáttmála sem hindrar vígbúnaðarkapphlaup í geimnum og fleira mætti nefna. Slík framtíðarmynd kann að virðast draumórakennd eða óraunsæ þessi árin í Ijósi þess t.d. hvernig samskiptum Bandaríkjanna og annarra ríkja og heimsstofnana er háttað. En höfum þá í huga að henni deila milljónir manna um allan heim, fólk sem neitar að gefast upp í baráttunni fyrir betri og friðsamlegri heimi og almenningsálit sem sameinast í volduga hreyfingu breytir heiminum; flytur fjöll. Hnattræn viðfangsefni framtíðarinnar. Ein veigamikil ástæða enn, sem gerir það að verkum að óhjákvæmilegt er að takast á við breytingar í öryggismálum, eru hin stóru hnattrænu viðfangsefni á sviði umhverfis- og félagsmála sem bíða úrlausnar. Þau gera það að verkum að mannkynið á engan annan kost en að breyta um stefnu. Aðeins til að tryggja vaxandi fjölda jarðarbúa lágmarks lífsviðurværi þarf gríðarmikið átak og aðgerðir á mörgum sviðum en um miðbik þessarar aldar ná jarðarbúar sennilega 10 milljaðra markinu. Takast verður á við margskonar sóun og setja neysluæði Vesturlandabúa skorður, tryggja bætta umgengni um auðlindir jarðarinnar og reyna að koma í veg fyrir að mengun og breytt veðurfar af hennar völdum geri sífellt stærri svæði hnattarins óbyggileg. Lykilatriðið er að það verður að skipta jarðargæðunum jafnar. Það óheillaástand að annars vegar búi sífellt færri jarðarbúar yfir gríðarlegri og vaxandi auðlegð og hins vegar vaxandi fjöldi við hreina örbirgð fær ekki staðist til lengdar. Við slíkar kringumstæður verður það sífellt erfiðara og mun aldrei takast að koma á friði og stöðugleika í heiminum. Ástandið lýsir sér best í því að eitt mesta heilsufarsvandamál víða í vestrænum ríkum er offita á sama tíma og allt að 800 -1000 milljónir manna ganga um vannærð á degi hverjum á fátækustu svæðum hnattarins. Það er fyrst þegar þessi mál eru komin upp á borðið og til umræðu sem við færumst nær því að ræða það sem raunverulega skiptir máli. Hvernig tökumst við á við fátækt og misskiptingu, fáfræði, kúgun og mannréttindabrot og annað það sem býr til jarðveg ofstækis, ofbeldis og hryðjuverka? Hvernig ætla 10,000,000,000 manna, tíu þúsund milljónir, að deila kjörum hér á jörðinni áður en öld er liðin? Allir hugsandi menn hljóta að viðurkenna að gagnvart slíkum risa viðfangsefnum á sviði umhverfis- og félagsmála mega vopnin sfn einskis og minna en það. Þvert á móti er sú gríðarlega sóun og þær miklu auðlindir sem bundnar eru í vígbúnaðinum einn helsti þröskuldur þess að varið sé nægjanlegu fé til að jafna og bæta lífskjör á jörðinni,auka þróunarsamvinnu, bæta menntun og fleira í þeim dúr sem aftur er svo forsenda framþróunar, friðar og stöðugleika f heilum heimshlutum. Hernaðarhyggjan og sóun vígbúnaðarbrjálæðisins í heiminum er því bæði hugmyndafræðilegur og efnahagslegur þröskuldur í vegi þess að mannkynið komist út úr margvíslegum ógöngum líðandi stundar og á rétta braut. Allt ber því að sama brunni, breytinga er ekki aðeins þörf, þær eru bókstaflega lífsnauðsynlegar. ísland á að leggja þar sitt lóð á réttar vogarskálar. Það er okkar siðferðilega skylda og breytir engu í því sambandi hvort lóðið er stórt eða smátt sem við ráðum yfir. bls.48

x

Íslenska leiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.