Íslenska leiðin - 01.11.2003, Qupperneq 63

Íslenska leiðin - 01.11.2003, Qupperneq 63
gefast. Þegar hefur tekist gott samstarf við embætti umboðsmanns Alþingis, Ríkisendurskoðun, stjórnendur og sérfræðinga innan fjármála-, utanríkis- og forsætisráðuneyti, við Samband íslenskra sveitarfélaga, Félag forstöðumanna í ríkisrekstri, Norræna stjórnsýslusambandið, auk all margra opinberra stofnana og erlendra sendiráða. Margrét telur afar mikilvægt að fram komi að baki stjórnar stofnunarinnar og forstöðumanns sé fræðslu- og ráðgjafaráð. Það sé til ráðuneytis um almennar áherslur í starfi, en einkum þó þróun fræðslu og ráðstefnuhalds fyrir opinbera starfsmenn, stjórnmálamenn og aðra hópa. Ráðið er umsjónarmanni meistaranáms í stjórnsýslufræðum innan handar, sérstaklega hvað varðar hagnýta hluta námsins. Aðspurð um hverjir sitji í stjórn stofnunarinnar sagði Margrét að í henni sitji þau Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórnmálafræði sem er formaður, Baldur Þórhallsson dósent í stjórnmálafræði, Helga Jónsdóttir lögfræðingur og borgarritari Reykjavíkurborgar, Magnús Pétursson hagfræðingur og forstjóri Landspítala- háskólasjúkrahúss, Olafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði og Páll S. Hreinsson prófessor í lögum. Áherslur í starfi stofnunarinnar Aðspurð um áherslur í starfi stofnunarinnar sagði Margrét að meginmarkmið hennar sé að efla kennslu og rannsóknir í stjórnun opinberra stofnana, bæði ríkis og sveitarfélaga. Stofnuninni sé ennfremur ætlað að vera vettvangur umræðna um stjórnmál, stefnumörkun og stjórnun í opinberum rekstri. Margrét segir stofnunina leitast við að ná markmiðum sínum með því að í fyrsta lagi með því að efla framhaldsnám, hagnýt námskeið og rannsóknir á sviði stjórnsýslu og stjórnmálafræða. í öðru lagi með því að efla tengsl fræðasamfélagsins í Háskóla íslands við forystumenn í þjóðlífi, stjórnmálamenn, embættismenn, forystumenn atvinnulífs og hagsmunasamtaka. Við erum ekki aðeins að bjóða upp á nám í stjórnmálafræðum og MPA nám, heldur er um leið verið að skapa samfélag nemenda og þeirra sem eru að vinna í opinberri stjórnsýslu, eru að rannsaka hana eða hafa áhuga á málefnum hennar og þeirra sem eru í stjórnmálum. Við gerum þetta með því að standa fyrir opinberum fyrirlestrum, málþingum, ráðstefnum og námskeiðahaldi á sviði stjórnmála, stjórnsýslu, opinberrar stjórnunar og stefnumörkunar. Loks stefnum við að því að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna á verksviði stofnunarinnar, m.a. með útgáfu veftímarits og ritraðar um stjórnsýslu og stjórnmálafræði. Helstu verkefni fyrsta árið Er Margrét var innt að því hver helstu verkefni stofnunarinnar hafi verið á fyrsta árið nefndi hún fimm svið: Endurskoðað og stóreflt MPA nám (Master of Public Administration) Þetta var lang umfangsmesta verkefnið og jafnframt það þýðingarmesta. S.l. vetur var skipulagi MPA náms stjórnmálafræðiskorar breytt með endurskoðun og fjölgun námskeiða og með gerð samninga við erlenda skóla og stofnanir um nemendaskipti. Þannig er MPA námið sem byrjaði nú í september að mörgu leyti nýtt nám. Við endurskoðunina var haft samráð við fjölda einstaklinga í ráðuneytum, stofnunum og hjá Reykjavíkurborg. Mikið kynningarstarf fór fram og árangurinn mikill því ríflega eitt hundrað manns hófu námið nú í september, mjög margir í hlutanámi með starfi og um tíu í fjarnámi. Er námið skipulagt með þarfir þessara nemendahópa í huga. Segir hún námið henta fólki sem hefur lokið fyrstu gráðu í ólíkum háskólagreinum. „Miðað er við að nemendur Ijúki náminu á einu og hálfu til tveimur árum, þótt sá tími geti verið styttri eða lengri eftir atvikum. Hægt er að taka s.n. Diplómanám í opinberri stjórnsýslu, en það er 15 eininga nám sem samanstendur af námskeiðum MPA námsins og geta nemendur fengið það síðar að fullu metið inní MPA námið. Með þessu námi er verið að búa fólk undir mjög fjölþætt störf, ekki einungis hjá ríki og sveitarfélögum heldur einnig hjá félagasamtökum, ráðgjafafyrirtækjum og sjálfseignarstofnunum sem sinna verkefnum fyrir hið opinbera," segir Margrét. „Þetta er einnig góður undirbúningur fyrir störf hjá eftirlitsstofnunum hins opinbera, sem hafa eflst á síðustu árum, eins og ríkisendurskoðun, umboðsmanni Alþingis og Samkeppnisstofnun. Þá má ekki gleyma alþjóðastofnunum og fjölmiðlum sem í vaxandi mæli fást við starfsemi sem tengist hinu opinbera." Hún segir ennfremur að mesti vöxturinn í starfsemi bls.63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Íslenska leiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska leiðin
https://timarit.is/publication/1849

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.