Íslenska leiðin - 01.11.2003, Page 64
íslenskra ráðgjafafyrirtækja sé í þjónustu við
opinberar stofnanir og bendir loks á að þriðjungur
vinnandi fólks á íslandi starfar hjá opinberum aðilum
og það er talið að 41% af landsframleiðslunni fari til
opinberrar starfsemi af einhverju tagi.
Vettvangur dagsins- Forum Politicae-
samstarf við nemendur í stjórnmálafræði
Eitt af verkefnum stofnunarinnar er samstarf við
nemendur í stjórnmálafræði. „Við höfum unnið með
þeim að kynningum á náminu í framhaldsskólum, að
stofnun Hollvinafélags stjórnmálafræðiskorar og
okkur langar eins og áður sagði til að samfélag þar
sem nemendur, kennarar og almenningur geta átt
upplýstar samræður við fræðimenn,
þjóðmálaleiðtoga og stjórnmálamenn. Þannig var
búinn til umræðuvettvangur sem stofnsettur var af
félagi nemenda í stjórnmálafræðum Politica í
samstarfi við stofnunina. Þar gefst nemendum í
stjórnmálafræði tækifæri til ræða við óformlegar
aðstæður við forystufólk í íslenskum þjóðmálum.
Þegar hafa verið haldnir fundir með Ólafi Ragnari
Grímssyni, Halldóri Ásgrímssyni, Steingrími J.
Sigfússyni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Guðjón
A. Kristjánsson. Og þegar þetta viðtal er tekið er
verið að undirbúa umræðufund um eignarhald á
fjölmiðlum og samkeppnisstöðu þeirra í Ijósi mikilla
umbrota á þeim markaði.
Tæplega þrjátíu minni málþing og opnir
fyrirlestrar á árinu
Eitt af verkefnum stofnunarinnar er að standa fyrir
opnum fundum og málþingum eða málstofum um
stjórnmál og stjórnsýslu. Fyrirlesarar eru innlendir og
erlendir fræðimenn, stjórnmálamenn og stjórnendur í
opinberum rekstri. Frá áramótum hafa verið haldnir
eftirtaldir opnir fyrirlestrar eða málþing: Áhrif umbóta
í ríkisrekstri 1991-2000; Bandaríkin og hugsanleg
árás á írak; Evrópuvæðing stjórnsýslunnar, áhrif
Evrópusamvinnunnar á stjórnsýslu Norðurlanda;
Reynsla Svía af aðild að Evrópusambandinu, framtíð
sambandsins og hlutverk Norrænu ríkjana innan
þess; Atlantshafsbandalagið á mörkum gamallar
Evrópu og nýrrar; Þjóðernishyggja,
sambandsríkjastefna og Evrópusambandið; Sambúð
kynþátta og fólks af ólíku þjóðerni í Bandaríkjum 21
aldar; Sjálfs-ritskoðun og réttarvernd fjölmiðla;
Hverju breytir stækkun Evrópusambandsins? Framtíð
Evrópusamvinnunar, staða EES og íslands; Leiðtogar,
lýðræði og stjórnmálaþátttaka. Eru stjórnmál að
verða áhorfendaíþrótt?; "Globalisation, poverty and
inequality: does the liberal argument that
globalisation causes falls in poverty and inequality
hold?"; Staða og hlutverk Sameinuðu þjóðanna í
kjölfar írak stríðsins; Samspil valds og alþjóðaréttar.
Sameinuðu þjóðirnar og hin "nýja heimsskipan";
"Feministic Governance, the Swedish Example";
Alþjóðaviðskiptastofnunin WTO, ráðherrafundurinn
10.-14. september og áhrif Doha lotunnar á þróun
milliríkjaviðskipti og þar með á atvinnugreinar
aðildarlanda, einkum landbúnað, iðnað og
sjávarútveg; Hvernig er hægt að láta
árangursstjórnun virka? Hvernig næst betri árangur í
opinberum stofnunun?; Áhrif alþjóðavæðingar á
þróunarmynstur í hagvexti í heiminum;
Evrópusamruninn og ísland; Málþing um umbætur á
opinberri stjórnsýslu í upphafi 21. aldar -ný svið,
nýjar aðferðir, lært af reynslunni; Einkarekstur í
heilbrigðis- og menntamálum. Hvernig virka
markaðslögmál á þeim sviðum?; Hin nýja
utanríkisstefna Bandaríkjanna og alþjóðalög um
mannréttindi.
Framundan í síðari hluta nóvember eru opinn
fundur um Alþingi og framkvæmdavaldið, málþing
um samkeppnislög og opinberan rekstur, um þróun
rafræns lýðræðis og breytingar á rekstrarformi í
heilbrigðiskerfi Bretlands s.l. ár.
Ennfremur hefur stofnunin átt samstarf við
þróunarsvið Reykjavíkurborgar um nokkra fundi á
undir yfirskriftinni Borgin í býtið, fundir um
samfélagsmál. Hefur stofnunin átt aðild að fundum
um klámvæðingu, þróun velferðarkerfisins og
íbúalýðræði í Reykjavíkurborg.
Endurmenntunarnámskeið í samstarfi
við Endurmenntun H.í. ofl.
Á árinu voru að sögn Margrétar skipulögð mörg
áhugaverð námskeið í samráði við fjölda aðila. Nefna
má: Samhæft árangursmat í opinberum rekstri;
Arður og árangur-aðgerðir sem skila árangri í
jafnréttisstarfi stofnana og fyrirtækja; Að innleiða og
ná árangri í stjórnun verkefna (project
management)- í opinberum sem og
einkafyrirtækjum; Stjórnsýslan: Réttarreglur og
málsmeðferð; Framkvæmdaleyfi; Andmælaregla
stjórnsýslulaga: Helstu dómar og álit umboðsmanns
Alþingis, Forystuhlutverk stjórnenda í opinberum
rekstri; Stjórnsýsluréttur og sveitarfélög; Ný lög um
rafræna stjórnsýslu, auk námskeiðs um innleiðingu
verkefnastjórnunar í stofnanir og fyrirtæki.
Áætlað er að um 300 manns sæki þessi námskeið á
árinu.
Útgáfa veftímarits og kennslubókar,
rannsóknir
Ennfremur segir Margrét að unnið sé að undirbúningi
kennslu- og uppsláttarrits um helstu lög og
reglugerðir sem lúta að sveitastjórnarstiginu. Ritstjóri
sé Páll Hreinsson prófessor og stjórnarmaður
stofnunarinnar. Þá sé í undirbúningi veftímarit með
fræðilegum greinum um stjórnmálafræði og
stjórnsýslufræði. Tímaritið verður gefið út í samstarfi
við Félag Stjórnmálafræðinga.
Að lokum: Hvaða þýðingu hefur slík stofnun
fyrir íslenskt samfélag?
„Það er Ijóst að opinberi geirinn mun ekki minnka á
komandi árum, en hann mun breytast. Það er von
okkar sem að þessu stöndum að efling náms,
rannsókna og umræðna um opinbera stjórnun,
stjórnsýslu og stefnumótun búi okkur undir þessa
breytingatíma og leiði til bættra stjórnar- og
stjórnunarhátta. Nemendur okkar í opinberri
stjórnsýslu eru mjög öflugur hópur sem við væntum
mikils af. Aðilar utan Háskólans hafa tekið samstarfi
við okkur afar vel og augljóst er af því sem á
undangreinir að verkefni eru næg og áhugi mikill.
Hvort okkur tekst að skila raunverulegum árangri
verður reynslan að skera úr um. En við gerum
sannarlega okkar besta"
bls.64