Íslenska leiðin - 01.11.2003, Side 65
Rannsóknarsetur um smáríki
Stofnun Rannsóknaseturs um smáríki hefur fengið
mikil og jákvæð viðbrögð bæði hérlendis og erlendis.
Undirbúningur að stofnun þess hófst í september 2001
að frumkvæði Baldur Þórhallssonar dósents í
stjórnmálafræði. Hefur setrið hlotið ýmsa styrki og
viðurkenningar . Hugmyndin hlaut m.a. verðlaun í
hugmyndasamkeppninni „Upp úr skúffunum" sem
Rannsóknaþjónusta HÍ og Nýsköpunarsjóður
atvinnulífsins standa fyrir. Þá hafa styrkir einnig verið
veittir af NORFA, Eystrasaltsráðinu og Impru. Auk
þess hefur Rannsóknasetrið fengið styrk frá ERASMUS
til þess að halda sumarskóla á íslandi og þróa
námsefni á vefnum.
Formleg opnunarhátíð setursins var haldin 3. júlí
síðastliðinn við fjölmenna athöfn í Hátíðarsal Háskóla
íslands. Ávarp fluttu hr. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands; dr. Peter Katzenstein prófessor við
Cornell háskólann í Bandaríkjunum en Katzenstein er
einn virtasti og þekktasti fræðimaður í
smáríkjarannsóknum í heiminum; hr Lennart Meri
fyrrverandi forseti Eistlands og hr. Tuiloma Neroni
Slade fyrrverandi formaður Sambands smárra eyríkja
(AOSIS) í Sameinuðu þjóðunum. en Slade er nýráðinn
sem dómari við Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag. Þá
kynnti dr. Baldur Þórhallsson, formaður stjórnar
Rannsóknaseturs um smáríki, starfsemi
setursins.
Stjórn og megin markmið
Setrið starfar innan Alþjóðamálastofnunar
Háskóla íslands og fer sameiginleg stjórn
með málefni þeirra. Meginmarkmið setursins
er að auka rannsóknir og fræðslu í
smáríkjafræðum (small state studies).
Utanríkisráðuneytið, Samtök atvinnulífsins og
Samtök iðnaðarins taka þátt í starfi
stofnunarinnar og eiga einn fulltrúa hvert í
stjórn. Þá sitja fjórir erlendir fræðimenn í
stjórn þess en þeir koma frá Bretlandi,
Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum, ásamt
fjórum fræðimönnum við Háskóla íslands.
í janúar síðastliðnum var Ásthildur Elva
Bernharðsdóttir, stjórnsýslufræðingur, ráðin
sem forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar
Háskóla íslands og Rannsóknaseturs um
smáríki. Er forstöðumaður ábyrgur fyrir
daglegum rekstri setursins.
Með áherslunni á aukna fræðslu er m.a. hvatt til
stúdenta- og kennaraskipta milli háskóla. Nefna má að
komið hefur verið á samstarfi í Norðurlandafræðum
við háskólana í Seattle, Lundi og Bergen. Setrið hvetur
einnig til samvinnu fræðimanna, fulltrúa opinbera
geirans og einkageirans og hefur m.a. í þeim tilgangi
tekið að sér gerð þjónustuverkefna. Hefur einu slíku
verkefni fyrir hagsmunasamtök þegar verið lokið af
fræðimönnum setursins.
Sumarskóli
Fyrsta námskeið sumarskóla Rannsóknaseturs um
smáríki var haldið í sumar frá 29. júní til 12.. júlí, þar
sem áhersla var lögð á að ræða stöðu smárra ríkja í
Evrópusamrunanum. Tæplega þrjátíu nemendur sóttu
skólann og komu þeir frá Bretlandi, Eistlandi, Hollandi,
Möltu, Noregi, Slóveniu, Svíþjóð og íslandi. Sjö
erlendir fræðimenn á sviði hagfræða, félagsfræða,
sagnfræða og stjórnmálafræða, miðluðu þverfaglegri
þekkingu til nemenda. Jafnt kennarar og nemendur
lýstu yfir ánægju sinni með hvernig til tókst með
sumarskólann. I kennslumati sem gert var að loknu
námskeiði komu fram uppörvandi ummæli frá
nemendum og nýtilegar ábendingar við
framtíðarskipulagningu skólans. Voru allir fyrirlestrar
námskeiðsins teknir upp á myndband og mun efni
þess vera notað við þróun námsefnis á vefnum. Mun
setrið njóta áframhaldandi styrkja úr Erasmus áætlun
ESB fyrir sumarskóla næsta árs.
Af öðrum verkefnum
Þó opnunarhátíð setursins og undirbúningur og rekstur
sumarskólans hafi borið hæst á fyrsta starfsári
setursins hefur öðrum verkefnum jafnframt verið lokið
og enn önnur eru í deiglunni. Minnst hefur verið á að
vinnu við þjónustuverkefni hefur verið lokið. Eins hafa
verið haldnar málstofur á vegum setursins hér á landi
og það komið að ráðstefnum erlendis.
Peter Katzenstein, frumkvöðull I smáríkjafræðum
I desember nk. mun setrið koma að tveimur
pallborðsumræðum í tengslum við ráðstefnu British
International Studies Association (BISA).Yfirskrift
ráðstefnunnar er „Small States and the International
System"
Vinnuhópur á vegum setursins undirbýr ráðstefnu sem
haldin verður í Reykjavík í september 2004. Annar
hópur vinnur að útgáfu ritraða um sérstöðu smáríkja í
alþjóðakerfinu sem væntanlegar eru fyrir lok þessa
árs. Þá er útgáfa safnbókar um fræðilegar kenningar í
smáríkjafræðum væntanleg á næsta ári. Nánari
upplýsingar um starfsemi setursins er á vef þess:
www.hi.is/~smallst.
bls.65