Orð og tunga - 2023, Page 35
26 Orð og tunga
og í (6c og e). Upphrópanirnar í (3)‒(5) hafa mjög óljósa tilvísun ‒ þær
eru fyrst og fremst tjáning á tilfinningum eins og reiði, vonbrigðum,
gleði eða aðdáun eins og lesa má úr textasamhenginu í sumum dæm
anna. Ávarpsliðirnir fela líka í sér tilfinningatjáningu, oftast reiði eða
fyrirlitningu, en þeir vísa þó augljóslega til þess eða þeirra sem orð
unum er beint til.
Nafnliðir með blótsyrði sem kjarna eða höfuðorð koma ekki síður
fyrir sem setningarliðir í fullmótuðum setningum þar sem þeir geta
verið frumlag, andlag eða hluti forsetningarliðar rétt eins og aðrir
nafnliðir. Blótsyrðaliðurinn er þá í viðeigandi falli miðað við stöðu
sína í setningunni. Dæmin í (7) sýna blótsyrðaliði í mismunandi setn
ingastöðu.
(7) a. víxltrompa ([hver fjandinn]
nf
er að víxltrompa?)
b. [Hvaða fokk]
nf
er eiginlega í gangi???
c. Við vorum að ræða þarna [allan andskotann]ræða+þf
.
d. Ég að fara að gifta mig! Nei, [þann andskota]gera+þf
geri ég
aldrei.
e. Um[hvern fjárann]um+þf
getur hann svo sem njósnað
hérna? Fjöllin? Eða sjóinn?
f. „Að [hverjum andskotanum]að+þgf
eruð þið eiginlega að
leita?“ spurði Kolbrún.
g. ég hélt að sjónvarpið myndi springa þannig að ég flýtti
mér að slökkva á [helvítinu]á+þgf
.
h. Ég var meðvirkur [djöflinum]meðvirkur+þgf
! Helvítis drullu
sokknum!
Þarna eru blótsyrðaliðir í nefnifalli í (7a‒b) þar sem liðurinn er frumlag
setningarinnar (svarar merkingarlega til spurnarfornafnsins hvað) eða
í aukafalli sem stýrist af umhverfinu sem orðin standa í. Í (7c‒d) eru
sagnirnar ræða og gera fallvaldarnir og stýra báðar þolfalli, í (7e‒g)
stjórnast fallið af forsetningunum um (þolfall), að og á (þágufall) og
í (7h) er það lýsingarorðið meðvirkur sem tekur með sér þágufall. Í
flestum þessara dæma stendur ákvæðisorð með blótsyrðinu, líkt og
í sumum dæmanna í (3), en hér eru það spurnarfornöfnin hver og
hvaða, ábendingarfornafnið sá og óákveðnu fornöfnin allur og einhver.
Oft er mjög óljóst til hvers slíkir setningarliðir vísa þótt það skýrist
stundum af samhenginu, annaðhvort innan textans eins og í (7d og g)
eða af þeim ytri aðstæðum þar sem orðin eru látin falla.
Í spurningum er líka algengt að forsetningarlið með blótsyrði sé
skotið inn á eftir spurnarfornafni eins og í (8), bæði til áhersluauka
tunga25.indb 26 08.06.2023 15:47:14