Orð og tunga - 2023, Page 85
76 Orð og tunga
undanfara á annað borð. En í fornmáli eru mörg dæmi þess að þinn
sé notað með hnjóðsyrði en sögnin höfð í þriðju persónu, rétt eins og
verið væri að ræða þriðja aðila sem þó er ekki raunin:
(6) a. Mun fóli þinn nokkurum manni líf gefa ef bana verður
auðið? (Laxdæla saga)
b. Hvað mun þjófur þinn vita til þess (Eyrbyggja saga)
c. En þótt landeign vor sé beitt upp eða taða niður brotin
eða menn drepnir þá liggur lydda þín og lætur sem
vér eigum ekki að annast. (KrókaRefs saga)
d. Kann þinn heljarkarl ekki betur að kveða því að mér
þykir þetta eigi síður heita mega níð en lof (Þorleifs
þáttur jarlaskálds)
Þá eru ýmis dæmi í fornu máli um að nafnorðið og þinn standi í
aukafalli:
(7) a. skylda eg launa kögursveini þínum / kanginyrði, ef eg
komumk yfir sundið (Hárbarðsljóð)
b. Ávallt hrýs mér hugur við er eg sé þig, frændaskömm
þína, fyrir mínum augum og hve mikill ógæfumaður
eg var þá er eg ól þinn óvita. Væri þar betri dóttir.
(KrókaRefs saga)
Notkunin sem sjá má í (6) og (7) þekkist ekki í nútímamáli. Hið sama
er að segja um orðaröðina þinn X sem sjá má í tvígang hér að framan,
í (6d) og (7b).10 Þessi orðaröð væri ótæk í nútímamáli í samhenginu
sem hér er til umræðu, þótt hún þekkist vissulega í annars konar
samhengi (s.s. í andstæðuáherslu, þetta er ÞITT vandamál, ekki mitt).
Þinn er raunar ekki eina eignarfornafnið sem nota má með niðrandi
nafnorðum, sbr. umræðu í 2. kafla. Hjá Cleasby (1874:738) er sýnt eitt
dæmi, með fleirtölufornafninu yðvarr, en fleirtala sögð afar sjaldséð:
(8) Hví róa djöflar yðrir fyrir oss í alla nótt? (Böglunga
saga)
Í þeim heimildum um fornmál sem hér er stuðst við er hvergi nefnt
að X þinn (eða þinn X) geti komið fyrir með jákvæðum orðum, eins
og ýmis dæmi eru um í nútímamáli (sjá (1) hér að framan) og í síðari
alda sænsku. Hugsanlega voru slík dæmi til að fornu en rötuðu ekki
10 Eiríkur Jónsson segir í orðabók sinni um fornmál (1863:738) að í þessu samhengi
sé þinn alltaf á eftir nafnorðinu, hundurinn þinn. Þannig er það vissulega oftast en
um hina röðina eru þó allmörg dæmi.
tunga25.indb 76 08.06.2023 15:47:15