Orð og tunga - 2023, Page 90
Katrín Axelsdóttir: Að eiga það sem maður er 81
líta til dæma á borð við helvítið á þér og helvítið á honum, dæma sem
nánar verður rætt um í 5. og 6. kafla. Þar samsvarar á þér/honum varla
neins konar genitivus definitivus eða appositivus, þetta minnir a.m.k.
mjög sterklega á eignartáknun sem er vel þekkt í íslensku og víðar.
Sandfeld Jensen (1900:22) bendir á að mynstur sambærileg din
X (eða X þinn) séu alls ekki einskorðuð við Norðurlönd þótt annað
megi ráða af eldri skrifum. Hið sama megi finna í portúgölsku (t.d.
seu burro ‘asninn þinn’) og svipað í suðurrúmensku og nýgrísku.
Það er því auðvelt að slá út af borðinu landfræðilegu rökin fyrir
upprunahugmyndinni (þú inn > þinn) í orðabók Cleasbys. Það má
taka undir með Tegnér og Schwartz að hugmynd Grimms sé nokkuð
langsótt. En hugmynd Tegnérs er kannski ekki eins langsótt og
Schwartz vildi vera láta. Samanburðurinn við hátíðleg ávörp á borð
við yðar hátign er allrar athygli verður og engan veginn eins langsóttur
og skýring Grimms. Ef eignarfornafn í X þinn hefur hlutverk genitivus
possessivus (ekkert mælir á móti slíkri túlkun, sbr. helvítið á þér,
helvítið á honum), og hefur alltaf haft það hlutverk, er skýring Tegnérs
sennilegust af þeim sem hér hefur verið gerð grein fyrir.
5 Sambandið helvítið á þér
Helvítið þitt virðist nokkuð algengt samband innan mynstursins X
þinn. Í Íslensku textasafni eru 24 dæmi um það. Til samanburðar er í
sama safni aðeins að finna 13 dæmi um óhræsið þitt, fimm um kvikindið
þitt, fjögur um þrjóturinn þinn, tvö um ófétið þitt og eitt um hálfvitinn
þinn.
Helvítið þitt virðist hafa þá sérstöðu meðal annarra X þinn sambanda
að eiga nokkurs konar systursamband þar sem eignarsambandið er
ekki táknað með eignarfornafninu þinn heldur forsetningarliðnum
á þér: helvítið á þér. Um þetta samband má finna nokkur dæmi í
nútímamáli í nýlegum netskrifum:
(9) a. Já okey varst þú ??? Helvítið á þér! (Athugasemd á
samfélagsmiðli 2015)
b. NÆS! Þú ferð í steininn helvítið á þér. (Athugasemd á
samfélagsmiðli 2007)
En um þetta eru einnig til eldri dæmi. Í orðabók Sigfúsar Blöndals (1920–
1924), undir helvíti, er nefnt helvítið á þér (þýtt „dit forbandede Skarn“ í
orðabókinni) og sýnt dæmi úr sögunni Mannamun eftir Jón Mýrdal:
tunga25.indb 81 08.06.2023 15:47:16