Orð og tunga - 2023, Síða 139
130 Orð og tunga
fjölgaði mjög gælunöfnum á mannanafnaskrá. Þar á meðal eru eftir
farandi nöfn (listinn er ekki tæmandi):
Adda, Addi, Addú, Addý, Allý, Anný, Baddi, Baggi, Bassi,
Baui, Bebba, Begga, Beggi, Benný, Bobba, Bogga, Dengsi,
Didda, Diddi, Dillý, Dissý, Ebbi, Eddi, Fúsi, Gaddi, Gaui,
Gillý, Gógó, Gói, Gullý, Gurrý, Hadda, Haddi, Haddý, Haffý,
Hebba, Hedda, Hædý, Idda, Issa, Issi, Jessý, Jónsi, Kata, Kaja,
Katý, Kiddi, Kiddý, Koggi, Konný, Kristó, Maddý, Magga,
Maggey, Maggi, Maggý, Muggi, Obba, Odda, Sigga, Siggi,
Silla, Silli, Sissa, Sonný, Súddi, Tobbi, Todda, Toggi, Ubbi,
Úddi, Venný, Þollý.
Aukist hefur að börn fái gælunöfn afa eða ömmu sem eiginnöfn, t.d.
Muggi sem gælunafn af Guðmundur og Gullý sem gælunafn af Guðbjörg.
Einnig eru allmörg dæmi um að fullorðið fólk bæti gælunöfnum sín um
við eiginnöfn. Ástæðurnar virðast vera nokkrar. Í fyrsta lagi má nefna
hugsanlega þörf fyrir aðgreiningu. Með það í huga að meginhlutverk
nafns sé að aðgreina einstaklinga þá væri dæmi um það að kona,
sem heitir jafnalgengu nafni og Sigríður Jónsdóttir, myndi bæta við
gælunafni sínu. Það er mismunandi hvort gælunafninu sé bætt við á
undan eða eftir upprunalegu nafni eða jafnvel að upprunalega nafnið
sé fellt niður. Dæmi um þessa möguleika væru þá Sigríður Sigga
Jónsdóttir, Sigga Sigríður Jónsdóttir eða Sigga Jónsdóttir. Í öðru lagi að
fullorðnir einstaklingar taki upp gælunafn sitt þar sem þeir hafi alla
tíð verið kallaðir gælunafninu og þekkist ekki undir öðru nafni. Það
kemur í veg fyrir misskilning að fá nafnið skjalfest þannig að hægt sé
að nota það á öllum stöðum og án útskýringa. Gælunafnið er orðið
hluti af sjálfsmynd viðkomandi og hann tengir ekki við það nafn sem
honum var gefið.6 Æ algengara er að í tilkynningum um andlát sé
gælunafn viðkomandi látið fylgja eiginnafninu til að enginn velkist í
vafa um hvern sé verið að tilkynna látinn.
Einnig hefur verið á það bent að stuttnefni eða gælunöfn eru þægi
legri í framburði fyrir útlendinga en löng íslensk nöfn (sbr. Höskuldur
Þráinsson 1997–1998:209).
6 Skýrt dæmi um það kemur t.d. fram í svörum við spurningaskrá frá Þjóðháttadeild
Þjóðminjasafnsins þar sem m.a. var spurt um gælunöfn: „Mér finnst ég frekar
heita Stella en Ingveldur.“ (Sarpur)
tunga25.indb 130 08.06.2023 15:47:17