Orð og tunga - 2023, Page 192
Orð og tunga 25 (2023), 183–185, https://doi.org/10.33112/ordogtunga.25.13
© höfundar cc by-nc-sa 4.0.
Ritfregnir
Orðabækur
Norsk banneordbok. Ritstjóri: Ruth Vatvedt Fjeld. Önnur út gáfa,
aukin og bætt. Oslo: Humanistforlag. 2021. (536 bls.) ISBN
9788282822114.
Nýlega kom út önnur útgáfa Norsk banneordbok en hún var fyrst gefin
út árið 2018 og svo þremur árum síðar með endurbótum. Samtals
eru rúmlega 1000 flettur í bókinni, þ.e. orð og orðasambönd sem
talin eru til blótsyrða, bannorða og skammaryrða. Eins og ritstjóri
bókarinnar bendir á er ekki alltaf augljóst hvaða orð og orðasambönd
megi flokka sem slík. Bókin hefst á inngangi þar sem fjallað er um
blótsyrði og bannorð að fornu og nýju: hvað einkennir þessi orð, af
hverju og hvernig þau eru notuð og af hverjum. Flettugreinarnar eru
þannig uppbyggðar að á eftir uppflettiorðinu birtast upplýsingar um
styrkleika orðsins (merkt með 0–4 þrumum). Þar á eftir kemur út
skýring á orðinu, þ.e. upprunaleg merking, orðsifjar og notkun í dag.
Varpað er ljósi á notkun orðsins með því að sýna raunveruleg notk
unardæmi úr blöðum og af samfélagsmiðlum. Að lokum koma svo
upplýsingar um orðflokk, merkingaflokk (t.d. djöfullinn, guð, kynlíf,
sjúkdómar og dauði) og upplýsingar um útbreiðslu (sjaldgæft, algengt,
mjög algengt).
tunga25.indb 183 08.06.2023 15:47:18