Gátt - 2014, Page 25
25
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Fjölskyldumiðstöð í Gerðubergi og reynsla af foreldra-
samstarfi í tengslum við leik- og grunnskóla í hverfinu skapa
verkefninu umgjörð fyrir verkefnið til framtíðar í Breiðholti.
Áætlað er að Fjölskyldumiðstöðin verði opnuð í upphafi árs
2015. Horft er til fyrirmynda á borð við Pen Green varðandi
skipulag fjölskyldumiðstöðvarinnar þar sem börn eru vel-
komin í opinn leikskóla, foreldrar geta fengið sér kaffi og sótt
námskeið og ráðgjöf allt á einum stað.
Virkt samstarf er við nokkrar lykilsstofnanir hjá borginni
svo sem Borgarbókasafn, Mannréttindaskrifstofu og Náms-
flokka Reykjavíkur. Verkefnið hefur verið rætt og kynnt bæði
fyrir stjórnendum á Skóla- og frístundasviði sem og Skóla- og
frístundaráði. Markmið þessara viðræðna eru að kalla eftir
samstarfi við önnur hverfi borgarinnar um að koma á lagg-
irnar sambærilegum verkefnum og samþættingu í sínum
hverfum. Sem dæmi má nefna að verið er að opna glæsilega
aðstöðu fyrir Borgarbókasafnið í Spönginni í Grafarvogi við
hliðina á Borgarholtsskóla og skapar það fjölmörg tækifæri
til samstarfs um nám og ráðgjöf fyrir brotthvarfshópinn í
Grafarvogi.
Ný framkvæmdaráætlun um málefni innflytjenda og
endurskoðun á ferlum við afgreiðslu hælisumsókna og mót-
töku hælisleitenda kalla á samþættingu milli ríkis og sveitar-
félaga. Með því að þróa móttökuviðtalið þá verði stigið fyrsta
skrefið bættri upplýsingagjöf og þjónustu við innflytjendur
sem eru nýfluttir til landsins. Verkefnið getur vonandi nýst
sem aðferð sem má aðlaga og innleiða á landsvísu.
H e I M I L d I R
Berglind Halla Jónsdóttir, áfangastjóri í FB. Febrúar 2014. Greining á brott-
hvarfsnemendum, úr Breiðholtinu og á aldrinum 18–25 ára.
Elsa Arnardóttir. (2014). Móttökuviðtal tilraunaverkefni . Reykjavík : Menntun
núna.
Hagstofa Íslands- sérvinnslur: Tölfræði 2012 um menntunarstig (tafla 1) og
hlutfall innflytjenda í Breiðholti.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið. (2014). Samningur við Reykjavíkur-
borg vegna Breiðholtsverkefnisins Menntun Núna . Reykjavík : Mennta-
og menningarmálaráðuneytið.
Mirela Protopapa um Phil Woods frá málþingi um Fjölmenningarborgir 16.
október 2014.
Rannsóknir og þjónustumat Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Guðmundur
Sigmarsson. Nóvember 2013. Menntunarstig notenda fjárhagsaðstoðar.
Verkefnastjórn. (2014). Úttektarskýrsla Menntunar Núna í Breiðholti. Reykja-
vík: Menntun núna.
U M H Ö F U N d I N N
Stefanía G. Kristinsdóttir er verktaki hjá Reykjavíkur-
borg, verkefnastjóri í Menntun núna í Breiðholti. Hún er
með BA-gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands, er rekstrar-
fræðingur frá Háskólanum á Bifröst, er með MBA-gráðu frá
Háskólanum í Reykjavík með áherslu á stjórnun í rafrænu
viðskiptaumhverfi og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi
frá Háskólanum á Akureyri. Stefanía stundar nú nám í marg-
miðlunarhönnun í Borgarholtsskóla. Hún starfaði í rúm sex
ár sem skrifstofu- og verkefnastjóri hjá Rannsóknaþjónustu
Háskóla Íslands, hún starfaði í tvö ár sem verkefnastjóri hjá
Þróunarfélagi Austurlands og í fjögur ár sem framkvæmda-
stjóri Þekkingarnets Austurlands. Frá 2011 hefur hún starfað
sem framkvæmdastjóri hjá eigin fyrirtæki Einurð ehf. og
hefur þar fengist við ritstjórn, stefnumótun og verkefna-
stjórnun. Dæmi um önnur verkefni sem hún hefur unnið að
er sameining stoðstofnana á Austurlandi í Austurbrú.
A b S T R A C T
The main objectives of the pilot project Education now in
in the Northwest Constituency and the Breiðholt neighbour-
hood in Reykjavík were to raise the educational level by:
• advancing the education and training of those who
have not completed their secondary school education,
• empowering immigrants in their Icelandic studies
and at the same time to encourage the validation of
the education and skills that they have acquired in
another country,
• encouraging the discussion and participation of the
inhabitants of the education and teaching in their
local community.
The utmost will be done to enhance this service for the inhab-
itants through education and counselling in cooperation with
service providers, such as municipal authorities, secondary
schools, trade unions and continuing education centres.