Gátt - 2014, Page 70
70
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Mynd 2 – dæmi um hæfniþátt í almennri starfshæfni.
Starfsþróun og færniefling
Greinir og tekur á eigin þörf fyrir símenntun og þróun til að bæta frammistöðu í starfi.
Þrep 1.a Þrep 1.b Þrep 2 Þrep 3
Tekur jákvætt í ábendingar um
námstækifæri Nýtir námstækifæri í umhverfinu Leitar uppi námstækifæri
Skipuleggur og stýrir eigin
símenntun/starfsþróun
• Er jákvæður fyrir ábendingum
um betra verklag.
• Nýtir sér leiðsögn á uppbyggi-
legan hátt í starfi
• Tekur þátt í fræðslu sem snertir
eigið verksvið.
• Er móttækilegur fyrir nýjum
hugmyndum og tækni.
• Metur hvernig má bæta eigin
færni.
• Nýtir námstækifæri í umhverf-
inu (t.d. námskeið, endurgjöf
frá yfirmanni eða samstarfs-
mönnum) til að öðlast þá færni
sem starfið krefst.
• Fer yfir eigin verk og skilgreinir
það sem gekk vel, hvað hefði
mátt betur fara og hvernig
megi bæta eigin frammi¬stöðu.
• Setur sér markmið um
símenntun í starfi með aðstoð
annarra.
• Skilgreinir eigin þörf fyrir
símenntun í samstarfi við yfir-
mann.
• Fylgir eftir málefnum til að við-
halda þekkingu og færni.
• Leitar eftir þjálfun á sviðum þar
sem tækni þróast hratt.
• Tileinkar sér og beitir stöðugt
nýrri þekkingu og færni til að
bæta eigin frammistöðu.
• Setur sér námsmarkmið.
• Safnar upplýsingum til að skil-
greina eigin styrkleika og veik-
leika í núverandi starfi.
• Skilgreinir og skipuleggur eigin
símenntun í tengslum við þarfir
fyrir þróun í núverandi starfi.
• Gerir áætlun til að ná náms-
markmiðum sínum.
• Fylgist með eigin framförum
við að ná færnimarkmiðum og
endurskipuleggur símenntunar-
áætlun sína eftir þörfum
um þessi mál en samstaða var í hópnum um að lýsa skyldi
almennri starfshæfni á þrepi 1 (1a og 1b), þrepi 2 og þrepi
3 nú í fyrstu tilraun. Í framhaldi af þessari niðurstöðu hefur
öllum hæfniþáttum í hæfnigrunni FA verið skipt á sama hátt
þar sem það þykir þjóna betur markmiðum með starfsemi FA.
S T A Ð A V e R K e F N I S I N S
Verkefnið verður unnið áfram, eins og gert er með hefð-
bundin raunfærnimatsverkefni, það er í samræmi við
aðferðafræði og ferla FA. Þegar þetta er ritað er búið að
vinna gátlista (skimunarlista og sjálfsmatslista) sem nýtast
í raunfærnimatinu út frá þeim viðmiðum sem lýst hefur
verið hér að framan. Einnig hafa verið unnar tillögur að fjöl-
breyttum matsaðferðum og matstækjum til notkunar í mats-
ferlinu. Þessar aðferðir byggja á hópvinnu við sjálfsmat og
færnimöppugerð, lögð er áhersla á jafningjastuðning og
að einstaklingar deili reynslu hver með öðrum. Auk þess er
áhersla lögð á sjálfsskoðun þátttakenda, notkun raundæma,
samtöl og ýmis konar verkefni. Þátttakendur eru hvattir til að
finna dæmi sem byggð eru á reynslu úr eigin lífi, námi eða
starfi til að sýna fram á færni í viðkomandi hæfniþætti og því
þrepi sem er til hliðsjónar hverju sinni.
Samkvæmt evrópureglum sem unnið var eftir í IPA-
verkefninu fór fram verðkönnun fyrir framkvæmd og varð
niðurstaðan sú að Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar á Akureyri,
SÍMEY, mun í samstarfi við Vinnumálastofnun framkvæma
raunfærnimatið nú á haustönn 2014 með 20 atvinnuleitendum.
Að mati loknu verða niðurstöður birtar þannig að ein-
staklingur getur séð á hvaða þrepum hæfni hans er. Þannig
fær hann skýra mynd af því hvar styrkleikar hans liggja og
hvaða hæfni megi styrkja, kjósi hann svo. Gert er ráð fyrir að
þátttakendur fái niðurstöður sínar meðal annars settar fram
eins og sýnt er á mynd 3. Grunnleikniþættirnir fjórir og starfs-
hæfniþættirnir 11 eru á ysta hringnum og staða einstaklings-
ins birtist með bláu línunni út frá stöðu hans miðað við hæfni-
þrep í hverjum þætti. Eftir því sem einstaklingurinn hefur
meiri styrkleika, samkvæmt þessari skilgreiningu á almennri
starfshæfni, verður flöturinn sem bláa línan afmarkar stærri.
0
1
2
3
4
Aðlögunarhæfni
Ábyrg nýting
Mat og úrlausnir
Starfsþróun og færniefling
Söfnun og úrvinnsla upplýsinga
Vinnusiðferði og gildi
Jafnréttisvitund
ÖryggisvitundÁrangursrík samskipti
Samvinna
Skipulag og áætlanir
Lestur/læsi
Ritun
Talnaskilningur
Upplýsingatækni 3
2
1b
1a
Mynd 3 – dæmi um niðurstöður einstaklings úr
raunfærnimati á almennri starfshæfni.