Úrval - 01.12.1964, Blaðsíða 13
PRESTUR FJÖLLEIKAHÍJSANNA
11
Síðan hvatti Willy Hagenbeck
hann til þess að starfa eingöngu
sem prestur á vegum fjölleika-
flokkanna, en Hagenbeckfjöl-
skyldan er ein þekktasta dýra-
temjarafjölskylda heims. Hagen-
beck skrifaði til páfa, og Faðir
Schönig fékk svar frá Píusi
páfa XII. Það var skjal, sem
veitti þessum 29 ára gamla presti
leyfi til þess að halda guðsþjón-
ustur í fjölleikatjöldum.
Hann er nú 37 ára að aldri,
stór og sterkur og því mikill
aufúsugestur fjölleikaflokksstjóra
á fleiri enn einn veg. Það er
sem sagt ekkert það starf innan
fjölleikaflokkanna, sem hann
getur ekki leyst af hendi. Hann
getur sett upp tjöld, mokað heyi,
vatnað fílum og starfað sem
miðaeftirlítsmaður. Hann hefur
jafnvel stjórnað sjálfum sýning-
unum einstaka sinnum.
Hann minnist þess dag's með
stolti, er hann var beðinn um
að gerast staðgengill hestatemj-
arans. Hann fékk aðeins nokk-
urra mínútna undirbúnings-
tíma og klæddi sig í flýti í lafa-
frakka og stígvél og setti upp
harðan hatt. Og svo hljóp hann
inn á fjölleikasvæðið. Hann
sveiflaði svipu sinni, og sýning-
in byrjaði. Og allt heppnaðist
eins og bezt varð á kosið. Hann
sagði mér, að við þetta tæki-
færi hefði hann tekið af sér
gleraugun og gat því varla séð
nokkurn skapaðan hlut, að því
er hann sagði.
En aðalstarf hans er meðal
sóknarbarnanna. Þetta fólk lifir
furðulegu lífi. Sérhver dagur býr
yfir sínum augnablikum ástar
og gleði og örvæntingu eða
dauða. Dag einn datt stúlka nið-
ur úr svifránni og lá að dauða
komin að tjaldabaki. Og Faðir
Schönig veitti henni síðasta
sakramentið við litla Ijóstýru i
viðurvist eiginmanns stúlkunn-
ar og móður, sem bæði stóðu hjá
og grétu. Han varð að brýna
raustina, því að hinum megin
tjalddúksins var hljómsveitin að
leika og fólkið hló hástöfum að
trúðunum. Næsta morgun skirði
hann nýfætt barn á næstum sama
blettinum, og síðan hlýddi hann
fjórum telpum yfir í kristnum
fræðum.
Lífið gengur sinn gang í tjöld-
um og vögnum fjölleikaflokk-
anna líkt og annars staðar. Feð-
ur og mæður reyna að ala börn-
in sín upp á réttan hátt, ungt
fólk verður ástfangið og lendir
stundum í erfiðleikum. Er prest-
urinn sneri heimleiðis síðla
kvölds. rakst liann eitt sinn á
ungan mann i leðurjakka, og
hafði hann beðið prestsins í
skjóli myrkursins. Presturinn
var hræddur um, að hann ætl-
aði að ræna sig, og þvi setti