Úrval - 01.12.1964, Blaðsíða 33
J. J. C. B. C. THEOPHRASTUS HLEYPT . . .
31
borða me<5 ausunni, en samt
hneygði ég mig fyrir henni og
sagði: „Já, auðvitað, það er al-
veg sjálfsagt."
Ég þaut niður stigann og sagði
June þessar góðu fréttir. Hún
kastaði sér í faðm mér og sagði:
„Ó, ég sem hélt, að þú vserir
nlveg bálreiður!" Ég neitaði, að
svo hefði verið. Hún hellti hálf-
bolla af vini í viðbót út í káss-
una. Ég hljóp út í næstu búð og
keypti meira af smjöri og brauði.
Maðnrinn í teppinu kom fyrst-
ur gestanna. Hann var nýrakað-
ur, ilmaði allur af ilmsmyrslum
og hafði klætt sig i snotran
tweedjakka. Undir handleggnum
var hann með einhvers konar
pappirsrúllu, og hana rétti hann
June, líkt og hún hefði að geyma
smaragðahálsfesti.
„Dagatal,“ sagði hann til skýr-
ingar, er hún vafði rúlluna í
sundur. „Fyrirtækið mitt gefur
viðskiptavinum sinum þau um
jólin. Það eru enn eftir 5 mán-
uðir á þvi.“ Hann sagðist heita
Charles Freeman og bað okkur
um að kalla sig bara Chuck.
Næst komu ungu hjónin. Unga
stúlkan virtist jafnvel enn ó-
frískari en hún hafði verið fyrir
nokkrum stundum. Þau settust
i svefnsófann okkar, hjúfruðu
sig hvort að öðru og voru enn
mjög aumleg á svipinn. Nokkr-
um mínútum síðar komu gömlu
frökenarnar, þær Cora og Betsy
Landon- Þær komu líka með
gjöf, sultukrukku, sem hafði að
geyma örlitinn, veiklulegan fisk,
sem synti fram og aftur í henni.
„Hugsið ykkur bara! Þetta
kom okkur svo á óvart! Gullfisk-
urinn okkar var að eignast
börn,“ tilkynnti fröken Cora
glaðlega. „Við vissum jafnvel
alls ekki, að hann væri ófrísk-
ur!“ Frú Theophrastus, sem
virtist aðeins skilja síðasta orð-
ið, eldroðnaði og leit niður fyrir
sig. Hr. Freeman sagðist vera
viss um, að gullfiskar kæmu úr
eggjum. Fröken Cora fullyrti,
að svo væri ekki, hvað þessa
tegund snerti. Hr. Theophrastus
sagði, að í Grikklandi kæmu
þeir úr eggjum.
Til allrar hamingju tilkynnti
Juné nú, að maturinn væri til-
búinn, og nú féll allt samtal nið-
ur. Við söfnuðumst öll umhverf-
is borðið. Hr. Theophrastus
bauðst til þess að lesa borðbæn-
ina. Konan hans brosti til hans
stolt á svip. Þær Cora og Betsy
Landon hrósuðu lifrarkæfunni.
Lauksúpan var alger sigur fyrir
konuna mína. Hr. Freeman fékk
sér ábæti af henni og sagði, að
ef einhver af þrem fyrri konum
hans hefði getað búið til eins
góðan mat og .Tune, væri hann
áreiðanlega enn giftur — ein-
hverri þeirra. Hann sagðist selja