Úrval - 01.12.1964, Blaðsíða 160
158
ÚRVAI.
karlar og konur, spígspora um
siður hennar: Chopin, George
Sand, Victor Hugo, Dumas, eig-
inkona Shelleys.
Delacroix var brúnleitur á
hörund. Augu hans voru næstum
austurlenzk, hár hans sítt og
alveg svart næstum allt til dauða-
dags. Hann hafði litiS, svart
yfirskegg. Konum fannst hann
mjög fallegur og töfrandi. Þær
eitu hann líka óspart á rönd-
um, og hann lét oft veiSa sig.
En hann bar ósvikna ást í brjósti
til Josephine de Forget barón-
essu, ást, sem ekki fölskvaSist.
HefSi hann ekki misst heilsuna,
hefSi hann áreiSanlega gifzt
henni.
Er Delacroix eltist, versnaði
hálsveiki hans um allan hehning.
Suma dagana gat hann ekki kom-
ið upp nokkru orSi. Ráðskona
hans, Jenny að nafni, sem hafði
starfað hjá honum i 28 ár, var
vön að vera á verði við dyrn-
ar og neita öllum þeim um að-
gang, sem kynnu að draga úr
þreki hans með nærveru sinni
eða tefja hann frá starfi. En
þau Joséphine de Forget og
Frédréric Chopin góðvinur hans
máttu koma þangað að vild.
Eitt sinn bauð skáldkönan
George Sand honum heim til
að hlusta á Chopin leika.
„Komdu um miðnætti, ef þú ert
ekki allt of mikil svefnpurka.“
Þessi sýn, tónskáldið við pía-
nóið og skáidkonan hlustandi í
nánd, hafði slík áhrif á Dela-
croix, að hann festi hana á lér-
eft. Kaupsýslumaður einn eign-
aðist síðar málverkið, sem hann
fór svo svívirðilega með, að
hann risti það sundur i helming
og seldi sem tvær sérstakar
myndir, aðra af tónskáldinu og
hina af skáldkonunni. Önnur
þeirra hangir nú í Louvresafn-
inu en hin í Kaupmannahöfn.
Er Delacroix gerðist mátt-
farnari, neitaði Jenny öllum
um aðgang nema lækninum. Eitt
sinn kom einn meðlimur Lista-
akademíunnar í heimsókn, Sjö
sinnum hafði Listaakademían
hafnað listamanninum, þangað
til meðlimir hennar greiddu
því loks atkvæði, að honum
skyldi veittur aðgangur að
henni. Delacroix vísaði mann-
inum burt. „Þeir hafa móðgað
mig nógu oft,“ sagði hann við
Jenny.
Heiður sá og viðurkenning,
sem hann hafði þráð, veittist
honum ekki fyrr en seint á æv-
inni — of seint. Hann hafði
aldrei fengið aðgang að innri
vígjum yfirstéttanna. En nú tóku
heimboð þaðan honum til hsnda
að hrúgast upp. Hann hlaut við-
urkenningu i ríknm mæli frá
hendi yngri gagnrýnenda, en
gagnrýnendurnir af gamla skól-