Úrval - 01.12.1964, Side 23
VÍSINDIN UMBREYTA DAGLEGU LÍFI.. .
21
á öllum þessum sviðum hefur
orðið alger bylting. Framfarir
í visindum hafa einnig, hvað
ýmis smærri atriSi snertir, haft
mikil áhrif á þjóðfélagiS og dag-
legt líf manna.
Sjáið þér fram á, að bráðlega
muni koma nokkuð það fram,
sem líkja megi við bifreiðina
eða úivarpið að áhrifamætti?
Nei. Á næsta aldarfjórSungi
mun notkun kjarnorku aukast
töluvert vegna framfara i fram-
leiðslu kjarnorkuofna. Og á þessu
tímabili mun einhver uppgötva,
hvernig stjórna megi fullkomlega
kjarnaklofningu og vinnslu
kjarnorku. Þegar það gerist,
mun „steingert eldsneyti“, kol
og olía, ekki lengur verða not-
að sem eldsneyti eða orkugjafi
heldur eingöngu sem hráefni
fyrir efnaiðnaðinn. Fjölgun
mannkynsins mun gera það að
verkum, að viS liættum að nota-
jarðveg til ræktunar ýmissa
jurta og trjáa, svo sem hörs,
baðmullar, gúmmís og hamps
og jafnvel trjáviðs.
í stað þessara efna, sem við
höfum framleitt ineð ræktun,
munu koma gerviefni. EfnaiSn-
aðurinn mun framleiða bygg-
ingarefni líkt og hann framleið-
ir nú gervivefnaðarvörur. Þarna
mun verða um að ræða mikla
breytingu.
Til hvers munum við þá nota
landið, sem efni þessi hafa ver-
ið ræktuð á?
Til matvælaframleiðslu, og
munu jurtir þær og tré, sem veita
okkur matvæli, verða enn frek-
ar bættar með kynbótum, þann-
ig að uppskeran verði meiri og
hetri.
Munu hús þá verða bgggð úr
plasti?
Já, en við skulum heldur kalla
þetta gerviefni, vegna þess að
um mjög margar tegundir efna
verður að ræða.
Álítið þér, að vísindalegar
framfarir i náinni framtíð verði
mestar á sviði kjarnorkufram-
leiðslu og rafreiknivéla?
Mestu breytingarnar munu
stafa af framförum í líffræði og
þá sérstaklega þeirri tegund lif-
fræði, sem tengd er eðlisfræði
og efnafræði. Fyrri helmings
þessarar aldar mun verða
minnzt sem þess tímabils, er
við einbeindum okkur að því
að komast aS leyndardómum
þeim, sem felast i kjarna frum-
eindanna. En þekking okkar á
kjarna lifandi fruma mun alger-
lega yfirskyggja þá þekkingu,
sem við höfum þegar aflað okk-
ur á kjarna frumeindanna.
Brátt munum við verða fær
um að breyta lifandi frumum,
þ. e. a. s. lifandi verum. Og þeg-
ar við verðum fær um slíkt,
verða möguleikar okkar geysi-