Úrval - 01.12.1964, Side 36
34
ÚRVAL
öll saman og gáfum henni silfur-
könnu, og á hana voru grafnir
upphafsstafir hennar. Gömlu
frökenarnar sögðu, að það yrði
of dýrt að grafa öll nöfnin henn-
ar á könnuna. Við June sam-
þykktum þetta, því að það
hvarflaði að okkur, að barnið
kynni að skipta um skoðun hvað
nafnagiftina snerti, þegar það
yxi upp.
Við vorum í fyrstu afmælis-
veizlunni hennar J.J.C.B.C.T.
Og svo þegar við byrjuðum sjálf
að eignast börn, fluttum við
burt. Við skiptumst á jólokort-
um við Theophrastushjónin í
Detroit. Þegar ég kom þangað
nýlega, sagði nágranni þeirra
mér, að þau hefðu flutt aftur til
Grikklands, en annar nágranni
sagði, að það væri ekki rétt,
hcldur hefðu þau flutt til borgar-
innar Toledo.
En hvar sem Jhana June Cora
Betsy Charlesetta Theoprastus
kann að vera niður komin núna,
vona ég bara, að hún hafi heyrt
söguna um það, hvernig hin
fræga kjötkássa konunnar minn-
ar hjálpaði til þess að hleypa
Jhönu June Coru Betsy Charles-
ettu Theophrastus af stokkunum
síðdegis sunnudag nokkurn fyrir
18 árum.
Þegar síðari heimsstyrjöldin stóð sem hæst, báru nokkrir Þing-
menn fram áköf mótmæli í neðri deild brezka þingsins vegna
þess, að Bernard L. Montgomery hershöfðingi hafði boðið sigr-
uðum ítölskum hershöfðingja í kvöldverð. Winston Churchill
hefur löngum haft mikla ánægju af góðum mat og drykk, en
Montgomery er hálfgerður meinlætamaður. Eftir að hafa hlust-
að á mótmælin um stund, reis Churchill á fætur og ávarpaði
þingheim þessum orðum: ,,Ég veit ekki, hvort hæstvirtur þing-
maður, sem borið hefur fram mótmæli þessi, hefur nokkurntíma
borðað kvöldmat hjá Montgomery. En það hef ég gert, og samúð
mín er skilýrðislaust með vesalings ítalska hershöfðingjanum!"
Geoffrey Daukes
Aldrei hefur neinn getað verið nægilegt mikilmenni til þess að
geta verið einræðisherra, og svo er enn þann dag í dag!
Pearl Buck.