Úrval - 01.10.1972, Qupperneq 54
52
ÚRVAL
Þú ert 13 ára gömul stúlka.
Hjúkrunarkona skólans segir við þig,
að þú hafir lekanda . . .kynsjúkdóm.
Hjúkrunarkonan veit þetta, vegna
þess að piltur einn i skólanum skýrði
henni frá þvi, hvar hann hefði fengið
lekandann, sem hann gekk með. Þú
veizt jafnvel ekki, hvað kynsjúkdómur
er. Það er nefnilega aðeins um að
ræða mjög ófullkomið kynfræðslu-
námskeið i skólanum i úthverfinu,
sem þú býrð i rétt fyrir utan New
Yorkborg. Þú læröir sjálf um kyn-
ferðismálin, þegar piltur einn lagði þig
úti I runnunum rétt fyrir utan bæinn.
Þér fannst þetta gott, og nú ertu lika
orðin vinsælasta stelpan i bekknum
þinum og ert önnum kafin við að
dreifa sýklum um skólann.
Skólahjúkrunarkonan skýrir fyrir
þér allar aðstæður eftir beztu getu og
sendir þig til einkalæknis.(Það er ekki
til nein opinber heilsugæzlustöð i öllu
landinu sem kafnar ekki undir nafni).
Læknirinn læknar þig af sjúkdómnum,
sem þú vissir ekki, að þú hefðir, og
sendir þig aftur i skólann. Enginn i
skólanum reynir að leiða þér fyrir
sjónir, hvað hefur i raun og veru gerzt,
vegna þess að það er ekki ætlazt til
sliks af þeim. En þeir reyna að fá þig
til þess að skýra frá nöfnunum á öllum
strákunum, sem hafa farið með þig út I
runna og hafa nú fengið lekandann af
þér.
Þannig er ástandið i þessu úthverfi,
sem hér um ræðir, en þar býr vel efnað
fólk. t stórborgunum má margfalda
sögu þessarar telpu og vina hennar
með tugum þúsunda. Kyn-
sjúkdómadeild Sjúkdóntavarnarmið-
stöðvarinnar i Atlanta skýrir frá því,
að tiðni kynsjúkdóma i innri hlutum
borganna sé 10 til 12 sinnu hærri en i
öðrum hlutum landsins. Fjölgun
lekandatilfella á siðasta ári var 15%,
Bandariskir skattborgarar greiddu 42
1/2 milljón dollara árið 1969 til þess að
halda uppi sy filiss júklingum I
geðsjúkrahúsum landsins. Við eydd-
um 4.7 milljón dollurum árið 1969 tii
þess að sjá fyrir þeim, sem höfðu
misst sjónina af völdum syfilis.
Kynsjúkdómalækningastöðin i St.
Louis er eina opinbera heilsugæzlustöö
borgarinnar, þar sem kynsjúkdómar
eru greindir og læknishjálp veitt við
þeim. Flestir þeir, sem þangað leita,
eru piltar. Þeir segjast vera komnir
þangað, vegna þess að þeir hafi fengið
„lekann”. Þeir fá númer, og það eru
þau númer, sem eru kölluð upp, þegar
þeir fara inn til læknanna, en ekki
nöfn þeirra. Hvorki fjölskyldu,
heimilislækni, skóla eða vinnu-
veitanda piltanna er skýrt frá sjúk-
dómnum. Og skoðun og læknishjálp er
ókeypis. 1 flestum fylkjum Band-
arikjanna kveða lög nú svo á um, að
ófullveðja unglingum megi veita
læknishjálp við kynsjúkdómum án
samþykkis foreldranna.
Ótti piltanna kemur skýrt i ljós
þegar þeir koma inn I skoðunarstofuna
einn i einu. Augu þeirra hvarfla til
stórrar litmyndar uppi á vegg, sem
sýnir ýmiseinkenni kynsjúkdóma,sem
ekki hefur verið leitað lækningar við:
einkenni syfilis á fyrsta stigi, sem
kaiiaður er „chancre”, rauðleitt sár
likt tölu i laginu, venjulega á getn-
aðarliminum, sem kemur fram frá 10
til 90 dögum eftir kynferðilega snert-
ingu við einhvern, sem gengur með
syfilis. önnur mynd sýnir sifilis á öðru
stigi, og er þar um að ræða útbrot á
bringu sjómanns, sem hafa breyðzt út
um mynd af ástarguðinum, sem
fiúraður hafði verið á hörund hans.
Hroðalegasta myndin sýnir mann,
sem gengur með syfilis á lokastigi.