Úrval - 01.10.1972, Blaðsíða 89
en barninu tókst að bjarga,” svaraði
Juan.
Samband jógúrt og ástar.
Jógúrt, sem neytt er i þorpum
Balkanskagans, er súr, þykk og auðug
af mjólkurfitu. Jógúrt
iðnaðarins er allt annað.
Tveir gerlar eru notaðir, fyrrnefndur
Lactobacillus bulgaricus og Strep-
tococcus thermophilus, og meö þeirra
hjálp er framleidd fæða, sem auðvelt
er að melta, meltist tvöfalt hraðar en
mjólk.
Mjólkin er gerilsneydd og kæld niður
á þaö hitastig, sem þessir gerlar dafna
bezt við, og þeir eru settir i hana siðan.
Þetta tekur margar klukkustundir, og
vel verður að fylgjast með. Standi
þessi meðferð of lengi, verður jógúrtin
of súr. Venjulega er notuð mjólk, sem
að nokkru er undanrenna, og eggja-
hvituefni eru aðalnæringarefnin, enda
eru i 200 gramma skammti 136 hita-
einingar, en I sama magni af mjólk eru
160 hitaeiningar. Ef bragðefnum er
bætt við, vex hitaeiningafjöldinn I 170,
sem þó er enn miklu minna en i
rjómatertu.
Sumir kunnáttu menn halda þvi
fram, að jógúrt sé ekki einungis eitt-
hvað sem menn borði, heldur ráði hún
miklu skaplyndi fólks. í veitingahúsi
einu hafa menn veitt athygli sambandi
milli jógúrt og ástar. Svo er sagt. Ef
stúlka, sem hefur hámað I sig smurt
brauð og kökur, fær sér allt i einu
jógúrt, þá er hún oröin „skotin”.
Höfundar mateiðslubókmennta og
hinir mannúðlegu framleiðendur
jógúrt fylgjast með á hinni greiðu
sigurbraut og gefa út urmul bók-
mennta um „jógúrt á 1001 veg” og
þess háttar. Ekkert, sem sagt verður
um jógúrt, veldur lengur undrun.
Jógúrt er kannski ekki sá Hfseliksir
sem Rómverjar töldu, liklega ekki
heldur jafn gott fóður fyrir hárvöxt og
Persar héldu fram. Hún er hins vegar
hressandi og hana má matreiða fyrir
hvern háls, létt meltanleg og vel fallin
sem eftirréttur á virkum dögum eða
milli aðalmáltiða fyrir þreyttan
fjöldann.
Jógúrt er heilsubætandi.
Jógúrt hefur marga góða eiginleika, og hefur verið notuð til
lækninga. Hún var löngum unnin úr sauðamjólk og notuð til lækninga
við sólbruna, máttleysi og svefnleysi og einnig var hún notuð við bitum
eiturslangna.
Rannsóknafólk við Visindaakademiu Armeniu gat betrumbætt
þessa vöru með þvi að breyta mikróflóru bakterianna I henni.
Visindamenn margra lahda hafa fengið áhuga á jógúrt og lækninga-
mætti þess. Japanir hafa komið fram með það, að það hafi ekki aðeins
góð áhrif á líffæri mannsins, heldur auki það að miklum mun starf
blóðmyndunarliffæra.