Úrval - 01.10.1972, Page 82

Úrval - 01.10.1972, Page 82
80 DULARGAFUR MÖRTU JÓNSDÖTTUR utan um höfuð manna, og þar sýndist mér það taka lengst út. Litirnir voru mjög mismunandi, gulir, bláir, fjólubláir, rauðir, grænir, gráir, dökkgráir og jafnvel svartir, stundum voru fleiri litir saman sem tilheyrðu sömu persónu. Llka voru litirnir missterkir, stundum lýsti þetta eins og ljós, af öðrum dimmdi, og fólkið geðjaðist mér eftir þvi, hvaða litir voru umhverfis það, stundum varð ég beinllnis hrædd, þegar litirnir voru mjög dökkir. Ég hélt lengi fram eftir, að allir sæju þetta, varð þvi ekki litið hissa, þegar ég fékk að vita það, aö enginn sæi þetta nema ég. A seinni árum hef ég mikið til hætt að sjá þetta. Það getur stundum komið fyrir, en er orðið talsvert sjaldgæft, og aldrei nema þegar ég sé fólk i fyrsta sinn. Fyrst þegar ég fór að sjá þetta, gerði ég mér alls enga hugmynd um, hvaö þetta gæti verið. A seinni árum hef ég farið aö Imynda mér, að þetta, sem ég sé með þessum hætti, geti ekki verið annaö en það, sem nefnt er „Aura”. Leitin að bátnum. f marz 1915 varð ég skyndilega veik, og lá þá um tima með hita. Hjá okkur var telpa 14 ára gömul, faðir hennar stundaði sjómennsku á mótorbát, sem gekk frá Keflavik. Það var kvöld eitt, meöan ég lá veik, að veörið var mjög vont, bátar voru þá allir komnir, nema bátur, sem faðir stúlkunnar var á, hann var ókominn og menn voru orðnir hræddir um, að eitt- hvað hefði orðið að. Ég vissi þetta og maðurinn minn hafði farið niður eftir, ef vera kynni að einhverjar fréttir kæmu. Ég varð pá ein inni. Stofa var fram af svefnherberginu og hurðin lokuð á milli. Ekki vissi ég, hvar telpan var. Þá tek ég allt i einu eftir þvi, að mér finnst eins og ég hafi enga fætur. Ég athuga þetta rólega, en það hefur ekkert að segja — ég finn ekki til fótanna, svo smáfærist þetta tilfinn- ingarleysi upp eftir likamanum og að lokum fann ég ekkert nema höfuðið. Mér þótti þetta afskaplega undarlegt og skildi ekkert i þessu, og dálitið fannst mér það óþægilegt að hafa ekkert nema höfuðið. En ég átti eftir að verða enn meira undrandi, þvi að næst fann ég, að ég stóð á gólfinu fyrir framan rúmið og sá likama minn liggja I rúminu. Ég varð alveg steinhissa, samt datt mér i hug, hvort þetta væri ekki dauðinn. Mér fannst það nú samt ekki sennilegt, þvi að ég hafði ekki verið svo veik, aö þaö væri likleg skýring. Ég varð þvi að leggja árar I bát, hvað skýringu snerti. Ég fór þá að lita kringum mig, llkama hafði ég, að mér fannst, en hann var allt öðruvisi en sá gamli, þvl að mér fannst ég strax finna, að nú gæti ég farið feröa minna frjáls, hvert sem ég vildi, ég fann, að munurinn var af- skaplegur. Þá tók ég eftir þvl, að allir veggir voru eins og gagnsæir. Ég notaði mér það og sá þá, að i næstu stofu sat telpan, sem ég hef áður getið um. Ég sá, hvar hún sat, og sá, að hún var að gráta, ég mundi ekki i svipinn eftir neinu, sem valdið gæti henni hryggð, en mér fannst strax ég finna svo innilega til með henni. Allt i einu mundi ég það, að pabbi hennar var i ofveðrinu á sjónum. Nú þótti mér gott að vera frjáls, — nú skyldi ég fara og leita að bátnum. Mér fannst ég fara út i myrkrið og illviðrið, það gjörði mér nú reyndar ekkert til, ég vissi af þvi, en fann það ekki.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.