Úrval - 01.10.1972, Síða 86

Úrval - 01.10.1972, Síða 86
84 DULARGÁFUR MÖRTUJÓNSDÖTTUR hvaö hann vildi segja, og hefur það ef til vill komið af þvi, að ég var dálitið hrædd við þetta og var alltaf að hugsa um að vakna. Loksins fannst mér ég heimta að vakna, og þá fann ég að tekið var undir herðarnar á mér og ég reist upp og hrist. begar ég vaknaði að fullu, sat ég uppi. Máttlaus var ég talsvert og dálitið var mér þungt i höfðinu. Nú var ég orðin ákaflega forvitin, en fann samt engin ráð til að fá neina betri vitneskju um þennan mann. Um þetta leyti var ung stúlka að nokkru leyti á heimili okkar, og vorum við mikið saman. Þá var það einu sinni i rökkri að við vorum einar saman heima hjá okkur. Mér datt i hug að reyna, hvort við gætum ekki komið borði af stað. Ég hafði einu sinni áður verið við slika tilraun, en það hafði verið i gáska gert, og ég hafði hugsað mér að vera ekki með þeim flokki aftur. En mig langaði til að vita hvað ég gæti sjálf, og nú datt mér i hug að hafa stúlkuna með. Við sátum dálitla stund. Þá fór borðið af stað, við spurðum og fengum það með töluverðum erfiðleikum, að þarna væri danski pilturinn kominn og vildi tala við mig. Ekkert gjörðist frekar það kvöld. Við reyndum aftur og þá datt mér i hug að reyna, hvort stúlkan gæti ekki skrifað. Það tókst, og virtist vera vit i þvi sem kom. Ég fór svo að spyrja þennan vin minn um hagi hans. Hann sagðist vera dáinn. Mér skildist, að hann mundi hafa dáið i ágúst árið áður, annars var hann ékki vel viss um það, sagðist hafa verið lengi meðvitundarlaus, að minnsta kosti myndi hann ekkert eftir sér, fyrr en nú nýlega. Hann sagðist hafi dáið heima mjög skyndilega. Ég spurði úr hvaða veiki hann hefði dáið. Það sagðist hann ekki vita vel, það væri ekki vist, hvaöa veiki það hefði verið. Ég spurði, hvaö hann hefði gjört, hann sagðisthafa veriðstýrimaður lengi, en rétt um það leyti, sem hann heföi dáið, hefði hann átt að fá skip, sagðist nýlega hafa tekið skipstjórapróf. Ég spurði hvort hann heföi verið kvæntur, en hann sagði nei. Við héldum þessum tilraunum áfram lengi frameftir vetrinum og ævinlega kom hann, þ.e.a.s. þegar við vorum einar. En kæmi það fyrir, að við leyfðum öðrum að vera með, kom hann aldrei. Einu sinni talaði hann um mál, sem okkur hafði farið á milli, þegar við þekktumst. Um það vissi enginn nema ég, en stúlkan skrifaði um það. Ég var nú farin að verða æöi forvitin eftir að fá einhverja vitneskju, en á því voru mestu örðugleikar. Sá eini, sem ég vissi um að gæti frætt mig um piltinn, var danskur skipstjóri frændi hans. En ég vissi ekki heimili hans, og um það leyti var enginn póstur fluttur milli tslands og Hafnar. Um vorið kom ég hingað til Reykja- víkur, og af tilviljun frétti ég þá, að þessi danski skipstjóri, sem mér þótti Hklegur til að gefa mér vitneskju, væri staddur hér i Reykjavík. Ég fór þvi til manns, sem ég vissi að var honum mikið kunnugur, og bað hann að fara til skipstjórans og fá fréttir af þessum frænda hans, bað hann að fá þær eins nákvæmar og hægt væri, en nefndi ekkert, að hverju ég spyrði. Maðurinn fór og kom með þær fréttir aftur, að pilturinn væri dáinn, hann hefði dáið fyrir 4 árum, var lengi stýrimaður, en átt að fá skip um það leyti sem hann dó, hafði þá nýlega verið búinn að taka próf. Heima hafði hann dáið, og mjög skyndilega hafði það að borið. Læknar höfðu ekki verið vissir, um hvað að honum hefði gengið, þeim hafði ekki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.