Úrval - 01.09.1973, Page 6
4
ÚRVAL
*
*
*
*
*
»
i
litlu þorpi, sem heitir
Kutol við rætur Kákas-
usfjalla í Suður-Rúss-
landi býr kát og fjörug
kona að nafni Khfaf
Lrasuria.
Hún er smávaxin — ekki 1,60
m á hæð, gráhærð og þrungin lífs-
gleði og fyndni.
Ég heimsótti hana á vormorgni,
þar sem hún var úti í garðinum
með hóp af börnum í kringum sig,
en þar voru líka nokkrar konur og
grísir.
Mér var tekið af hinni hlýju gest-
risni fólksins í Georgíu og við gædd-
um hvert öðru fyrst á osti svo á
vodka — og ræddum saman af ein-
lægni.
Hún sagði mér frá minningum
sínum bæði í nútíð og fortíð.
Hún hafði frá mörgu að segja.
Minnið var gott og hún var yfir
130 ára að aldri. Sonur hennar bjó
í næsta húsi aðeins 82 ára.
Það var henni líkt og nýlegur at-
burður, þegar hún minntist á snjó-
veturinn mikla árið 1910.
„Sonur minn var þá orðinn full-
orðinn maður og ég var um sjö-
tugt. Ég hjálpaði honum að moka
ofan af þakinu.“ Og nútíðin?
Hún hafði nýlega verið í heim-
sókn hjá ættingjum í fjarlægu þorpi.
Hún ferðaðist með strætisvagni ein
og fór svo fótgangandi milli húsa.
Hún hafði unnið þarna á samyrkju-
búi, þegar það var stofnað fyrir 40
árum. En hætti störfum um 1970.
Um 1940 hafði hún einmitt verið
verðlaunuð sem sú röskasta við að
bera á borð í tedrykkjutímanum.
ORSAKA LEITAÐ.
Sem læknir og kennari við stórt
almenningssjúkrahús, þekki ég
margs konar vanda á vegum eldra
fólks, og ég hef orðið áhugasamur
um þau rök, sem liggja til þess, að
ellin getur orðið svo heillarík og
eftirsóknarverð.
Síðastliðin tvö ár hef ég heimsótt
þrjú fjarlæg fjallahéruð, þar sem
fólki auðnast að lifa miklu lengur
og njóta meiri krafta og ánægju í
ellinni en auðið virðist í helztu ný-
tízkuborgum heims.
Þar tel ég fyrst Andean þorpið í
Vilcabamba í Ecuador. Þá Hunga
landið í Karakoram heiðalöndum
Pakistan, stjórnað frá Kashmir. Og
í þriðja lagi og bezt kannað og
skjalfest á svæði í Kákasusfjöllunum
í Georgíufylki í Suður Sovét, sem
nefnt er Ahkhazía. Stærstur hluti
þess fólks, sem náð hefur hundrað
ára aldri er í Kákasus.
Árið 1970 var fólk yfir hundrað
ára á þessum slóðum talið tæplega
fimm þúsund manns. Af þeim voru
1844 í Georgíufylki eða 39 á hverja
hundrað þúsund íbúa. Um 2500 voru
í Agerbaijanfylki eða 63 á hverja
hundrað þúsund íbúa þar. Til sam-
anburðar skal þess getið að í Banda-
ríkjunum eru aðeins þrír hundrað
ára að aldri á hverja hundrað þús-
und íbúa.
Hvaða orsakir eru til langlífis
þessa fólks? Auðvitað erum við háð
því, hvað í magann er látið í mat
og drykk, og þess vegna byrjaði ég
á því að athuga mataræðið í þess-
um þrem héruðum.