Úrval - 01.09.1973, Side 28
26
ÚRVAL
Hann sendi Martin til Bandaríkj-
anna í heimsókn. Þar er hann
kynntur fyrir loddurum, harðstjór-
um og himpigimpum, heilu sam-
safni, sem svíkja hver annan með
landkynningarsmjaðri og gylling-
um, endalausum afsökunum á
þrælahaldi, allt til að sýnast, lesa
blöð með nafninu: Glæpadagbók
New York borgar og stanga úr
tönnunum með byssustingjum.
Svo æðislegt var hatrið, að aldar-
fjórðungi síðar, þegar amerískir
landkynningarmenn buðu honum
aftuí í fyrirlestraferð til U.S.A.,
sendi hann vin sinn á undan til að
kanna, hvort honum yrði tekið sem
vini eða fjandmanni.
Það fyrra varð ofan á. Ameríka
hafði mildazt og ferðin varð sönn
sigurför. Dickens kom heim aftur
eftir fimm mánaða ferðalag 20 þús.
pundum ríkari.
Þegar Dickens dó 1870, var hann
aðeins 58 ára að aldri. Og það er
opinberlega viðurkennt, að hann
vann sig í hel.
Sumir telja, að hann hafi vitandi
vits framið langvinnt sjálfsmorð
vegna óhamingju í ástum og hjú-
skap og vaxandi örvæntingu í þjóð-
félagsvandamálum, þar sem hann
fann sig engu geta áorkað til góðs.
En hver sem orsökin var, þá var
þetta mikið áfall fyrir ensku þjóð-
ina.
Honum var neitað um þá ósk
sína að fá almenna greftrun. Hann
var borinn í Westminster Abbey. í
þrjá daga samfleytt var hljóð bið-
röð þúsunda, sem komu til að
kveðja þennan ástmög Englendinga.
Þeir vissu sem var, að aldrei
hafði verið og aldrei yrði framar
nokkur rithöfundur honum líkur.
Við höfum nóð þroska, þegar við getum verið viss um, að við
höfum á réttu að standa um einhvern hlut, án þess að við þurfum
endilega að sýna fram á, að einhverjum öðrum skjátlist um hann.
Sydney J. Harris.
Dr. Robert Rand, taugaskurðlæknir í Kaliforníuháskóla, notar
öflugan rafsegul til að eyða æxlum án skurðar með hnífi án blóð-
missis. Hann færir sér í nyt, að æxli, sem missa aðrennsli blóðs,
deyja, vegna þess að þau fá ekki nauðsynlega „næringu“ og geta
ekki komið frá sér nauðsynlegum úrgangi.
Rand sprautar til dæmis inn í æð í grennd við æxlið silicone með
örsmáum járnögnum og notar segulinn til að koma ögnunum inn
í æxlið. Þannig er silicone, sem storknar hratt, haldið við æxlið,
og æxlið „fölnar og deyr“, þar sem blóðæðar þess hafa verið stíflaðar.
Silicone fer ekki lengra út í æðakerfið með þessari aðferð, en það
verður í líkama sjúklingsins það, sem eftir er.