Úrval - 01.09.1973, Side 64

Úrval - 01.09.1973, Side 64
62 ir þeim og hrista þær og biðja þær: „Farið heim, gerið það, farið heim!“ Heim? Hvað vissi ég um heimili þeirra, hugsaði ég. Ef til vill voru þessar stúlkur hérna um miðja nótt vegna þess að eitthvað vantaði heima hjá þeim. En ég vissi, að jafnvel þótt lífið heima hjá þeim væri hart og erfitt, þá mundu þær dag nokkurn komast að þeim sann- leika, að ef einhver í heiminum elskaði þær nógu mikið til þess að láta sig varða framtíðarhamingju þeirra, þá var það þetta stritandi á- hyggjufulla fólk á þessum ófull- komna stað, sem kallaðist heimili. Mig langaði til þess að ráðast gegn þeirri hugsun, sem virtist telja stúlkunum trú um, að þær væru að flýjaá vit einhvers betra. Hvað vonuðust þær til að finna — ást? Ást í lánuðum kofa? Héldu þær, að með þessu mundi þeim líða betur? Ég skildi, að þetta, sem ég varð vitni að nú, var gagnrýni á kyn- slóð mína, og hún var verðskulduð. Mín kynslóð hefur ekki skeytt um að vera í sambandi við þeirra kyn- slóð. Við höfum látið það gott heita, að þær létu blekkjast af hinum fögru loforðum „nýju“ siðfræðinn- ar. Við höfum lofað hana í bókum, leikritum og kvikmyndum, gert hana að metsöluvarningi án þess að segja þeim, að í henni væri í rauninni ekkert nýtt eða siðfræði- legt. Það sem verra er, við höfum ekki einu sinni styrkt eigin trú á gömlu siðfræðina. Okkur hefur mistekizt að sýna hjónabandið frá beztu hlið þess og þess vegna heldur unga fólkið, að hið gífurlega háa skilnað- ÚRVAL arhlutfall lýsi gæðum allra hjóna- banda. Við hefðum átt að segja þeim, að jafnvel þótt hjónaband sé ekki fullkomið, þá er það grund- vallarþáttur þjóðfélags okkar og sá bezti, sem enn hefur komið fram. Hugmynd ný-siðfræðinnar um að láta tilfinningarnar vísa veginn væri góð, ef mannveran væri að- eins dýr — ef hún hefði hvorki vit- und né sál. En maðurin er meira en dýr og hann lítillækkar sjálfan sig þegar hann lifir eins og dýrin. Sálmaskáldið spurði Guð: „Hvað er maðurinn, að þú takir eftir hon- um? ... Því að þú hefur markað honum rúm litlu lægra en englun- um og krýnt hann dýrð og heiðri." Maðurinn er mesta sköpunarverk Guðs. Að maka sig eins og flæk- ingsköttur er fyrir neðan virðingu hans. Þetta eru lög Guðs og orð léttvægra heimspekinga eða spott uppreisnargjarnra unglinga fá aldrei breytt þeim. Mig langaði til þess að segja stúlkunum, að þegar ungur maður kvænist, þá velur hann stúlku, sem hann getur virt og verið hreykinn af. Þetta hefur mörgum kynslóðum ungra stúlkna verið sagt, og er sannleikur nú eins og áður. Mig langaði til að segja þeim, að ég gæti munað, hvernig það er að vera 16 ára, skeytingarlaus óþolin- mæði við að halda áfram að lifa, gleðin og kvíðinn til skiptis yfir því að vera ung, ákafinn í að elska og vera elskuð. Þegar fólk er 16 ára er kvöldið og nóttin hið mikil- vægasta af öllu. Stúlku, sem ekki á stefnumót á laugardagskvöldi, finnst að hún hafi misst af óendan-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.