Úrval - 01.09.1973, Síða 90

Úrval - 01.09.1973, Síða 90
88 líkamlegrar þjálfunar segir í ný- legri skýrslu: „Röskleg ganga, ekki letilabb er einfaldasta og um leið bezta form íþróttar“. Og hjartasérfræðingur- inn Dr. Paul Dudley White bætir við: Það er auðveldasta íþrótt fyrir flesta einstaklinga og íþrótt sem unnt er að stunda án nokkurs út- búnaðar nema þá ef nefna mætti góða skó. Göngur má stunda í hvaða veðri sem er, hvaða umhverfi og á hvaða aldri, sem vera skal.. Slangur, letilabb og búðaráp geta ekki talizt ganga og er slíkt þó oft býsna þreytandi, þótt ekki sé af krafti gert. Sérhver okkar hefur sínar göngu- venjur og göngulag, og iðkun göngu hvort sem um langar eða stuttar fjarlægðir er að ræða yfir daginn færir með sér kosti tímasparnaðar, matstaðar, óþreytandi og ánægju- legrar hreyfingar, sem hæfir svo vel mannlegu eðli. Ekkert dýr stígur hæl svo heilt til jarðar, teygir sig upp á stóru tána með fjaðurmagnaðri hreyfingu, þar sem báðir fætur eru samtímis í spori aðeins 25 prósent tímans, knén í sveigju, vöðvarnir spenntir án á- reynslu, mjaðmagrind í mjúklegu vélgengi. Nú á dögum er af góðum og gild- um ástæðum stundum sagt sem svo „nú ertu í fullum gangi“, til að lýsa stundum starfsdags og persónulegra umsvifa, þegar allt gengur að ósk- um, fallega og vel í framkvæmd, meira starf með minni fyrirhöfn og færri mistökum. „Eg hef tvo lækna“, ÚRVAL segir máltækið, „minn hægri og vinstri fót“. Dr. White samþykkir þetta, er hann segir: „Kröftug fimm mílna ganga gerir döprum en annars hraustum manni meira gott en öll lyf og sálfræði í veröldinni gætu gert“. Og hvers vegna? Gangan eflir blóðrásina. Hagnað- ur og heillir daglegrar göngu liggja einkum í aukinni súrefnisneyzlu, öflugri hjartslætti, öruggari blóð- rás, sem þessi eðlilega íþrótt veitir. Vöðvakerfi líkamans verkar líkt og hjálparvél fyrir hjartað og æðar þess. En þar eð leggvöðvarnir eru öfl- ugustu vöðvar líkamans og stærstir, er starfsemi þeirra ákafxega þýð- ingarmikil. Séu þeir hins vegar ekki notaðir af neinum krafti, senda þeir enga hjálp til hjartans, sem heitið getur. Röskleg ganga hefur einnig mik- il áhrif á háræðanet líkamans. í venjulegum mannslíkama eru 60 þús. mílur af æðum, mest háræðum. Þessir örfínu æðaþræðir eru ábyrg- ir fyrir allri næringu út um vöðva og bein. Danskur Nóbelsverðlauna lífeðlis fræðingur August Kragh sýndi fyrstur fram á það um 1920 hvern- ig háræðar opnast og lokast á víxl. Aðeins örfáar háræðar megna það, þegar líkaminn er í algjörri kyrr- stöðu. En þær opnast og lokast fimmtíu sinnum oftar og meira, ef líkaminn er á hreyfingu eða vöðv- arnir í gangi. Lífeðlisfræðingur í Noregi 1965,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.