Úrval - 01.09.1973, Page 95

Úrval - 01.09.1973, Page 95
MARGAR HLIÐAR Á MARK TWAIN 93 amúel Langhorne Clem- ens, er síðar varð heims- kunnur undir nafninu Mark Twain, var í heiminn borinn 30. nóv- ember 1835. En í þeim mánuði sást á næturhimninum hala- stjarna sú, sem kennd er við Halley. Eftir útreikningum að dæma átti stjarna þessi að birtast aftur 74 ár- um síðar, eða seint í apríl 1910, — en Clemens spáði, að sá dagur yrði einnig dánardægur sitt. Hann tjáði vinum sínum einum, að hann væri þess fullviss, að guð almáttugur hefði ráðstafað hlutunum þannig. Samúel sá dagsins ljós á stað, sem hann lýsti sjálfur sem „hinu næst- um ósýnilega þorpi í Florída, Mon- roe County, Missouri. í þorpinu bjuggu eitt hundrað hræður, og ég jók íbúatöluna um eitt prósent. Það er meira en margir mestu menn sögunnar hefðu getað gert fyrir bæ- inn sinn. Það er kannski engin hæ- verska af mér að benda á þetta, en satt er það engu að síður.“ Sam litli fæddist fyrir tímann og var veiklulegt barn, og öllum þótti ganga kraftaverki næst, að hann skyldi lifa af sinn fyrsta vetur í Missouri. „Ég taldi skyldu mína að annast hann af fremsta megni,“ voru orð móður hans. „En eftir út- liti hans að dæma gat maður naum- ast haldið, að han ætti mikið er- indi út í lífsbaráttuna." Sem fullþroska maður spurði hann móður sína eitt sinn, hvort hún hefði ekki haft af sér áhyggjur, þegar hann var lítill. í hjartans ein- lægni svaraði hún: „Fyrst var ég smeyk um, að þú myndir deyja. En ég varð reyndar stundum hrædd um, að þú myndir hjara!!“ Næstum frá því Sam litli fór að tala var hann snillingur í að segja sögur. Einu sinni, þegar einn ná- granninn hafði hlustað á sögu hjá honum, sagði hann efablandinn við frú Clemens. „Ég vona, að þú trúir ekki orði af því, sem strákurinn segir!“ „Ég veit alveg, hvar ég á að setja takmörkin", svaraði mamman. „Ég dreg níutíu prósent frá. Afgangur- inn er hreinasta gull.“ Haustið 1839 flutti faðir Sams litla, John Clemens, með fjölskyldu sína til Hannibal, sem er bær í 30 mílna fjarlægð frá Mississippi- fljótinu. Þarna opnaði hann verzlun, en vörubirgðirnar voru að mestu teknar að láni. Elzta barnið, hinn fjórtán ára Or- ion, var settur til afgreiðslu í búð- inni, en Pamela, á þrettánda ári, var send í skóla. Þessi tvö ásamt Benjamín, sjö ára gömlum, voru hlýðin börn, og Henry, fæddur í Florída, var kartinn snáði og stolt fjölskyldunnar. Sam var vandræða- barnið. Móðirin lýsti yfir, að hann ylli meiri vandræðum en öll hin börnin til samans. „Hann er að gera mig sturlaða með uppátækjum sínum, þegar hann er innandyra," sagði hún. „Og þegar hann er úti, get ég hvenær
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.