Úrval - 01.09.1973, Side 102

Úrval - 01.09.1973, Side 102
100 irgefa þeim, því þeir vita ekki hvað þeir segja.“ Eftir dauða Henrys tók Sam á ný við starfi sínu eða námi á fljóta- bátum. Þar sem hann var ungur og lífsglaður í eðli sínu smádvínaði sorgin. Vorið 1859 fékk hann viður- kenningarskjal sitt. Loks hafði hann réttindi sem bátsstjóri á fljóta bát. Aðeins 23 ára gamall hafði hann aflað sér atvinnuréttinda, sem gáfu af sér tekjur, sem voru ámóta og laun varaforseta Bandaríkjanna. Næstu tvö árin stundaði hann bátsstjórn á fljótinu, og varð sér- lega vinsæll. Þar sem bátastjórarn- ir komu saman í St. Louis og New Orleans var hann ævinlega velkom- inn gestur með sögur sínar. Eftir því sem Borgarastyrjöldin nálgaðist færðist meiri alvara yfir hópinn. Sumir bátsstjóranna hugð- ust ætla að berjast með þessum að- ilanum, aðrir með hinum. Þar sem þeir áttu heima ýmist í Norður- eða Suðurríkjunum voru viðhorf þeirra að sama skapi ólík. Sam kvaðst ekki hafa neinn sérstakan áhuga á að sitja í glerhúsi bátsstjór- ans og láta skjóta á sig frá báðum hliðum. Hann ákvað að fara heim og íhuga ástandið. Hann fór frá New Orleans sem farþegi á skipinu „Uncle Sam“ um miðjan apríl, eða daginn sem Lin- coln forseti gaf út fyrstu herkvaðn- ingarskipun sína. Gamall vinur, Zeb Leavenworth, var bátsstjóri, og Sam stóð á verði með honum. Alls staðar umhverfis þá var rætt um stríðið og hvarvetna sást viðbúnað- ur, en þeir létu samt ekki hugfall- ÚRVAL ast, þótt þeir slyppu naumlega frá borginni Memphis. „Uncle Sam“ skreið upp fljótið í áttina til St. Louis, og bátsverjar hrósuðu happi yfir að hafa sloppið óskaddaðir. En allt í einu heyrðu þeir skot- hvell og sáu reykstrók stefna í átt til sín. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir, að þetta var bending til þeirra um að nema staðar. Áður en mín- úta var liðin heyrðist annar hvellur, og byssukúla sprakk rétt fyrir fram an lyftingu bátsins með þeim afleið- ingum, að margar glerrúður brotn- uðu. Zeb Leavenworth bátsstjóri hrökklaðist út í horn og gaf frá sér vein. „Guð almáttugur!11 hrökk upp úr honum. „Sam, hvað meina þeir með þessu?“ Sam Clemens sneri stýrinu til hinnar áttarinnar. „É!g held þeir vilji, að við dokum við andartak", svaraði hann. SILFURÆÐI Eftir að hafa heimsótt Hannibal fór Sam til Keokuk til að hitta Ori- on bróður sinn. En Orion hafði ein- mitt um þessar mundir boðist opin- ber staða í Nevada. En hann skorti fé til farárinnar. Sam bauðst þá til að greiða allan kostnað, ef hann tæki sig með. Orion hraðaði sér að búa sig að heiman, og þeir bræður lögðu af stað. Eftir margs konar erfiðleika vöknuðu þeir einn morguninn í hér- aði, þar sem óvinveittir Indíánar réðu ríkjum. Sam skrifar svo um þetta: „Um nóttina hafði Indíáni sent byssu-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.