Úrval - 01.09.1973, Side 104

Úrval - 01.09.1973, Side 104
102 ÚRVAL slíkt ábyrgðarstarf, en tilboðið var freistandi, þar eð hann var í ó- tryggri stöðu. LÍFSSTEFNAN MÓTAST Árið 1862 var Virginia fjörug og æsileg námuborg, að íbúatölu yfir 15 þúsund. Viðskiptalífið var í líf- legasta lagi, allir höfðu gnægð fjár og flestir fúsir til hvers konar lysti- semda. Gistihús, verslanir, veitinga- staðir og hvers kyns skemmtistaðir þurftu eigi að kvarta yfir lélegri aðsókn. Silfrið dreifðist jafnt og þétt frá námunum til hinna ýmsu þjónustufyrirtækja. Hinn ríkjandi tónn var silfurhljómurinn. í saman- burði við Virginíu var Carson sveit- þorpið einbert. William Wright, aðalfregnritari blaðsins „Enterprise", sem skrifaði undir nafninu Dan de Quille, var maðurinn, sem tryggði Sam stöðu hjá blaðinu, og með þeim hófst þeg- ar í stað vinskapur, er entist árum saman. Undir stjórn og aðhaldi de Quille varð Sam fljótlega fjölvís skríbent. Frumleiki hans og skringileg kímni kom nú í góðar þarfir. Fljótlega eft- ir þetta tók hann sér rithöfunda- nafnið „Mark Twain.“ Og nú hófst hið raunverulega ævi starf hans, ritstörfin. Hann lagði leið sína til Kaliforníu og skrifaði þar árið 1865 söguna um „Stökkv- andi froskinn", sem hvert dagblað á fætur öðru gleypti við. Eftir það var hann sendur til Hawaii-eyja, og skrif hans þaðan juku mjög á álit hans. Að lokinni dvöl sinni þar tók hann sér far með skipinu „Quaker City“ til Miðjarð- arhafsins, og þá sérstaklega Gyð- ingalands. ÁSTIN KEMUR TIL SÖGUNNAR Mark Twain varð ástfanginn af konunni, sem hann átti eftir að gift- ast, áður en hann leit hana augum. En þetta gerðist dag einn um borð í „Quaker City“, þegar Charles Langdon, ungur farþegi, sýndi hon- um lítið málverk af systur sinni, sem Olivia hét. Hún var aðdáanlega falleg stúlka með viðkvæmnislegan svip og dökkt hár. Mark fann þegar í stað, að slíkri gyðju gæti hann aldrei gleymt. Þegar hann kom til New York í desember þetta ár, hitti hann Lang- don á ný, og þá kynntist hann for- eldrum hans og systur, sem um þessar mundir eyddu frídögum sín- um í borginni. „Það var fyrir fjörutíu árum. Upp frá þeim degi hefur systir hans aldrei horfið úr hug mér né hjarta“, skrifaði hann. Ferðalag til Kaliforníu, þar sem hann hélt fyrirlestra og ritaði megn ið af „The Innocents Abroad", gerði honum ókleift að hitta Livy fyrr en sumarið eftir. En þá vandi hann komur sínar til heimilis Lang- dons í Elmira. En þegar augljós var hugur hans í garð dótturinnar, urðu þau hjónin tortryggin, og Livy sjálf var alls ekki undir það búin að játast honum. „Þegar við ræddum einslega sam- an“, skrifaði Mark, „tók ég eftir sem fyrr, að herra Langdon leit á mig sem algerlega ókunnugan mann, sjálfsagt sökum þess, að ég
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.