Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 7
það er fylgdi honum síðan til leiðarloka og má ætla að mænuveiki
hafi valdið. Fárra vitna nyti nú við um æskuár Jóns í Steinum ef
kæmu ekki til vinátta hans við unga stúlku austur í Öræfum,
Jódísi Sveinsdóttur, og útgáfan á Þjóðsögum Jóns Árnasonar árið
1862.
Sigfús M. Johnsen, fyrrum bæjarfógeti í Vestmannaeyjum, lét
mér í té árið 1963 eiginhandarrit Jóns að ljóðum hans og skáld-
systur hans, Jódísar á Hofi, skrifað 1856—1859. Kynni þeirra
hefjast 1856 og næstu ár fara mörg ljóð og Ijóðabréf á nrilli þeirra.
Jón er þá 17 ára og segist alloft hafa byggt rekkju næstliðin þrjú
ár. Ljóðin í kverinu lýsa á næsta einstæðan hátt tveimur íslenskum
ungmennum um miðja 19. öld, áhugamálum þeirra og menntun.
Ljóðabréf fer frá Jóni til Jódísar 19. apríl 1857. Þar dáir hann
áður fengið ljóð og tjáir henni, að það hafi fengið lof hjá öllum í
Steinum. Hann segist hafa yndi af fornum brögum, sögum og söng
og er þá þegar farinn að rita upp rarar sögur, rímur og ljóð. í
október 1859 sendir Jón Jódísi ljóðabálka og gerir grein fyrir því
hvað á reka hafi borið í sögum og rímum. í framtali eru alls 25
Islendingasögur, Noregskonungasögur, riddarasögur og rímur og
að auki margt fréttablað og kvæðaval. Snorra Edda er ein lesinna
bóka og kenningar hennar nothægar ungu skáldi.
Ekki fæ ég færi á að sjá hvenær bréfaviðskipti Jóns og Jódísar
falla niður og bréf þeirra í lausu máli virðist glötuð til hópa, nema
eitt bréfbrot frá Jódísi, sem Jón hefur fest inn í þjóðsagnahandrit
sitt, Lbs. 421, 8vo, og með því kvæðið Barnadikt og þulur í
uppskrift Jódísar. Bréfið sýnir að Jón hefur verið nokkuð
laundrjúgur yfir gengi sínu hjá konum, stóð sú þá verst að vígi sem
var í mestum fjarskanum. Jódís tekur svo til orða:
Hnappavöllum þann 16. júlí 1862.
,,Góði kunningi, ætíð sæll. Ástsamlega þakka ég þér fyrir til-
skrifið nreð Árna og allt annað gott undanfarið. Það gleður mig að
þú segist vera búinn að fá þér þriðju stúlkuna þarna nálægt þér,
sem getur fundið þig þegar þú vilt, því ég veit fyrir víst að hún gefur
þér einhvörn tíma meira en einn Extragtspela, allra helst ef hún er
ekki mjög fátæk. Þú segist hafa gert þér gott af því og drukkið
minni okkar þriggja og langar mig nú að heyra hvörja þú hefur haft
Goðasteinn
5