Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 94
Jón Sigurðsson í Kanada
Islendingar hafa löngum verið áhugasamir ferðamenn og hafa
leiðir þeirra legið víða um veröldina. í vaknandi þjóðfrelsisbaráttu
19. aldar kom upp ný og öflug hreyfing meðal fólks tii að bjarga sér.
Með því að fárra kosta var völ á heimaslóðum, vildu margir Ieita
burt og helst stofna eigið samfélag, nýtt Island, þar sem loftslag
væri hlýrra og lífsskilyrði betri en hér heima.
Hafís, eldgos, harðindi, fátækt og úrræðaleysi ásamt með
skilningssljórri erlendri valdstjórn hafði þá í sameiningu lamað
svo þrek og viðleitni fólks til að rétta úr kútnum og skapa hér
mannsæmandi lífskjör að fjölmargir sáu þann kost vænstan að
leita burt og hasla sér völl í nýju landi. Lengi vel voru þó flutningar
úr landi fremur fátíðir og næsta tilviljanakenndir. Þeir sem
hneigðust að mormónatrú hófu að flytjast til Bandaríkjanna og
settust þá að í Utah upp úr 1850. Þá kom upp hreyfing um að
flytjast til Brasilíu, fá þar landsvæði og stofna nýlendu. Þær ferðir
byrjuðu upp úr 1860, en minna varð úr en áætlað var í fyrstu, þótt
þangað færu samt nokkrir tugir manna. En um og upp úr 1870
byrjuðu ferðir til Norður-Ameríku, fyrst til Bandaríkjanna og síðan
aðallega til Kanada. Árin 1873 og 1874 fóru stórir hópar frá íslandi
og höfðu flestir í hyggju að setjast að í Wisconsinfylki í Banda-
ríkjunum. Þá höfðu borist fréttir af góðum landkostum þar og
einnig að íslendingar væru þar vel séðir meðal norskra og sænskra
landnema.
Eftir margra vikna hrakninga með lélegum skipum náðu hópar
þessir til Ontarío í Kanada, þar sem fólkið dvaldist síðar í algjöru
reiðileysi og bjó við margs konar skort um margra mánaða skeið.
Flestir vildu komast til fyrirheitna landsins í Wisconsin, en það
ætlaði ekki að reynast auðvelt. Stjórnvöld í Kanada fréttu af þessum
ferðalöngum og heyrðu jafnframt að íslendingar væru harðgert og
bráðduglegt fólk og því æskilegir sem landnemar. Voru innflytj-
endum þessum gerð allgóð boð, ef þeir vildu setjast að í einhverjum
nýbyggðum í Kanada. Forystumenn innflytjendanna töldu slíkt
koma til greina, ef fyrst yrði gengið að nokkrum skilyrðum um
stöðu þeirra og réttindi.
92
Goðasteinn