Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 28
Aður hefur verið gerð grein fyrir kvæðabók Eggerls Óiafssonar. Þýðing séra
Þorleifs Kláussonar frá 1686 sem um getur í bréfinu er nú í handritasafni Jóns Árna-
sonar, í JS. 398—399, 8vo. Bæði númerin eru frá Jóni Vogfjörð komin um hendur
Jóns i Steinum. Fyrra bindið minnist Jón á í bréfinu frá janúar 1863 og er þar að
finna ritgerðir ýmsar, eftir séra Jón Halldórsson í Hítardal (rangnefndur Vigfússon),
Pál Vídalín o.fl., samtíningur með hendi Jóns í Mið-Mörk.
„Kristindómsbók Doktórs Jóhanns Gerharði,, er nú JS. 608, 4to, í safni Jóns
Árnasonar, og heitir „Vmm Sannann Christendóm” eftir Jóhann Arndt. Hún er í
tveimur bindum. Handritaskráin segir að rithönd á fyrri bókinni svipi til rithandar
Sigurðar Björnssonar lögmanns.
Jón telur að brot úr hringnum úr Þrasakistu muni liggja í rusli hjá séra Kjartani
í Skógum. Vafalaust hefur þetta verið forn kirkjuhurðarhringur frá Skógakirkju og
koparinn í honum verið steyptur utan um járnhring. Á það bendir það að séra
Þorsteinn á Kálfafellsstað gefst upp við að steypa úr honum. Sagan um kistuhringinn
yfirfærðist svo á annan hring, þann sem var í kirkjuhurð í Eyvindarhólum
1895—1962 og nú er varðveittur í byggðasafninu í Skógum.
Steinum á skírdag, 1865.
Kær heilsan. Nú er ekki hægt að fylla stóran miða, hvorki með
bókanöfnum né öðru, því ekkert „ber til titla né tíðinda, frétta né
frásagnaþ því eptir öngum gömlum bókum né öðru hefi ég komist
öðru en a) Þórðarbænum, útg. 1769. Meiga þær fást fyrir aðrar
yngri ef vill. b) Litla vísnabókin, fyrri útgáfan, vegna athugaleysis
man ég ekki árið þá hún var prentuð, hana held ég geti fengið ef
þarf, víst fyrir aðra fróðleiksbók, því kunningi minn og bókavinur
á. Eins lika c) Spegill Sálarinnar. Mig minnir útgáfu hans sé minnst
í 5tu deild Árbókanna og er það sú sama. Hana fæ ég ef þér girnist.
Fleira hef ég ekki var orðið. Ekkert hefi ég var orðið sem til forn-
aldarleifa heyrir nema ef nefna skyldi gamla svuntuhnappa og pör
úr prinsmetal.
Það eru hér mýmargir af þeim mönnum sem eru við lítilfjörleg
jarðarhreysi orðnir uppvægir að fara til Vesturálfunnar nýbyggða
lands svo þá skortir ekkert til framkvæmdanna nema góðar fréttir
af viðtektum, einkum hvort þeim er nokkur styrkur veittur eða
þægilegheit til nýlenduhúsa bygginga.
Mér er eins og fleirum fýsn á að heyra hérum. Samt get ég til að
þetta ár líði svo að ég siti heima því ég get til ég mundi ekki þetur
komast af þar, þreklaus til allra starfa, heldur en hérlendis. Líkast
þykir mér stöku menn skrifi sig þangað nú með póstinum.
26
Goðasteinn