Goðasteinn - 01.06.1985, Page 23
lútandi, enda er hann fúsari á að rita sjálfur en segja mér. Kemur
það af metnaði því hann langar til að sín verði getið í safni því sem
hann lifir í voninni um að í framtíðinni muni einhvern tíman koma
en gerir mér þar með tvöfaldan greiða. Ekki veit ég hvað komið er
hjá honum en nokkuð ætla ég það muni þó orðið.
Sjáifur er ég búinn að skrifa 83 No. Er þetta þar af merkilegast:
1. Loðmundur gamli á Sólheimum og Gráfríður kona hans. 4.
Einars mið (hví svo heitir). 13. Magnús prófastur Pétursson (hvernig
hann varð skáld). 14. Galdra Tómas á Söndum. 17. Barna Hjalti
(Hjalti Magnússon í Teigi og Anna Vigfúsdóttir hirðstjóra eða um
Paradísarhellir). 18. Kola Hjalti á Rauðafelli (sonarsonur Barna
Hjalta). 19. Rútur á Rútsfelli (og þaraf leiðandi örnefni þeirra sem
ætluðu að myrða hann). 20. Guðnasteinn (eða Goðasteinn og
ganga til hans 1864). Hitt eru sögur og þessleiðis dót.
Ekki gat ég komið við að skoða Paradísarhellir í sumar, því síður
Snorraríki. Hvort ég get það nokkurn tíma veit ég ekki.
Ekki veit ég hvernig mér gengur að safna eða fá uppspurðar
gamlar prentaðar bækur eða aðrar skjaldgæfar eða að einhverju
merkilegarenþessaráégsjálfur: 1. SáGuðlegaÞenkjandi Náttúru-
skoðari, ásamt hugleiðingu um dyggðina. Útdregið úr ritsöfnum...
Pétur Friðriks Suh.. íslenzkað af Jóni presti Jónssyni. Leirár-
görðum 1793. 2. Sjö sendibréf Jesú Krists til safnaðanna í Asíu...
Vestmannaeyjum 10. Oktober 1768. Guðmundur Högnason. Þetta
er handrit, að ég ætla eiginhandarrit höfundarins, sama sem
prentað var í Hrappsey. 3. Ættar-tal og Æfisaga Finns Jónssonar
biskups... Kaupmannahöfn 1792 og 4. Hannesar Finnssonar, vantar
titilblaðið. 5. Ráð móti efasemi... eður um Sinnisins ánægju...
útskrifað á Engelsku af Jóseph Hal biskupi til Nortvik... þýtt úr
dönsku... Útskálum í Garði 1686 af Þorleifi Claussyni (handrit). 6.
Kristindómsbók Doktórs Jóhanns Gerharði. Ákaflega stór í fjögra-
blaða formi í tveim pörtum. Ákaflega falleg fljótaskrift á fyrri
partinum, vantar nokkuð framan við. Seinni partur með allólíkri
snarhönd. Á annarri hliðinni eru stórir stafir í latínu letri BTH
(mun vera Brynjóifur Thorlacius) en á hinni hliðinni 1718. Bandið
hefur verið vandað og gott skinnband með mikilli rullu.
Þessar næstu fimm bækur eru allar frá Jóni Vogfjörð, allar
Goðasteinn
21