Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 76

Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 76
Jón R. Hjálmarsson: Sjaldan hef ég orðið eins hissa Smásaga Það var fyrir tæplega einum áratug að ég var beðinn um að gerast leiðsögumaður með útlendum ferðamönnum, sem ætluðu að ferðast hér á landi um tveggja vikna skeið. Játaði ég þessari bón, af því að ég var í sumarleyfi á þessum tíma og hef alltaf ánægju af ferðalögum um landið okkar. Hópur þessi var frá Bandaríkjunum og kom hingað á vegum Ferðaþjónustu Loftleiða, er annaðist móttöku og skipulagingu alla, en frumkvæðið að ferðinni vestan hafs átti Sögufélag Minnesotaríkis og flestir þátttakendur voru félagsmenn þess. í hópi þessum voru um þrjátíu manns, karlar og konur á öllum aldri. Forystu fyrir liðinu hafði aðalfararstjóri og honum til aðstoðar var varafararstjóri, svo að vel var fyrir öllu séð. Allmargt af fólkinu var af norskum og sænskum ættum eins og algengt er í sléttulöndum Norður-Ameríku og fáeinir reyndust af íslensku bergi brotnir, þótt ekki kynnu þeir mikið í tungu forfeðra sinna hér á gamla Fróni. En þetta var allt saman glaðlegt og frjáls- mannlegt fólk og skemmtilegt að vera samvistum við það á allan hátt. Ferðin um landið var skipulögð með nokkuð óvenjulegum hætti og skipt niður í nokkra áfanga. Einnig var ýmist farið með lang- ferðabílum eða flugvélum milli staða sem líka er fremur fátítt. En ekki ætla ég að fjölyrða um þessa ferð í smáatriðum að sinni, þótt margs væri vissulega að minnast, heldur aðeins segja frá atviki í upphafi ferðar, sem leit nokkuð illa út um tíma og hefur orðið mér eftirminnilegt af þeim sökum, en þó sérstaklega vegna þess sem á eftir fylgdi, löngu síðar. 74 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.