Goðasteinn - 01.06.1985, Page 84
nokkuð margt á þessum slóðum, en þó er það ekki nema sáralítið
þrot af íbúafjöldanum. Samt er það áberandi hversu mjög þetta
fólk kemur við sögu í forystusveit stjórnmála, atvinnulífs og
menningarmála víðsvegar um borgir og byggðir Manitobafylkis og
segir það sina sögu um menntun og atgervi þessa fólks.
í Winnipeg og Lundar
í Winnipeg, sem er stórborg með um 600 þúsund íbúum, eiga
heima um 15 þúsund manns af íslenskum ættum. Magnús Elíasson,
borgarráðsmaður í þessari stóru borg, er einn þessara íslendinga,
þótt fæddur sé í nýbyggðunum við vestanvert Winnipegvatn. Hann
staðhæfði að Winnipeg væri fjölmennasta borgarsamfélag íslend-
inga næst á eftir Reykjavik og gat ég ekki borið á móti því, þótt ég
benti honum á að Kópavogur og Akureyri fylgdu fast á eftir.
Magnús hafði lengi starfað að stjórnmálum og setið í borgarstjórn
um langt árabil. Við kynntumst honum allvel sem og mörgum
öðrum íslendingum þar í borg. Yrði of langt að telja allt það fólk,
sem bauð okkur heim til sín, fór með okkur í skoðunarferðir eða
sýndi okkur aðra vinsemd. Ekki er þó úr vegi að nefna fáeina, svo
sem Einar og Þóru Árnason, Fanney og Stefán Stefánsson, Emely
og Tom Finnbogason, Lilju og Jón J. Árnason, Evelyn og Gordon
Helga Thorvaldsson, Harald Bessason, prófessor, Ólafíu eða Lóu
Jónasson og fleiri.
Þau Evelyn og Gordon Helgi áttu að vísu heima i Winnipeg, en
voru bæði ættuð frá Lundar við Manitobavatn. Sunnudag einn
buðu þau okkur öllurn með sér í skemmtiferð. Var þá ekið í norð-
vesturátt frá Winnipeg og ekki létt fyrr en í Lundar, sem er allstór
og þéttbýl sveitabyggð við austanvert Manitobavatn. Við byrjuðum
á að skoða þar kirkjugarðinn og var athyglisvert hversu mikill fjöldi
íslenskra nafna var þar á krossum og legsteinum. En brátt var
haldið í heimsókn til Páls Pálssonar, sem reyndist vera móðurbróðir
Evelyn og var þetta fólk ættað úr Borgarfirði. Kom brátt á daginn
að Sigurður Helgason, sem er Borgfirðingur að ætt, var í frændsemi
við það Iíka. Var okkur þarna boðið til hádegisverðar og gert vel og
höfðinglega við okkur í alla staði. Eftir matinn fórum við til að
82
Goðasteinn