Goðasteinn - 01.06.1985, Blaðsíða 103
Er ég kom að Skógum haustið 1954, var þar við skóiann mjög
dugandi og samhent kennaralið, sem mér féll sérstaklega vel að
starfa með. Mátti hiklaust segja að þar væri valinn maður í hverju
rúmi, enda sýndi ágætur árangur nemenda, að þarna var vel og
dyggilega unnið. Snorri Jónsson kenndi þá sem jafnan síðan alla
leikfimi og aðrar íþróttir. Allir sem til þekkja vita hversu íþróttir eru
mikilvægur þáttur í öllu starfi heimavistarskóla og því nauðsynlegt
að þeim stjórni traustir og ötulir kennarar. Þetta starf rækti Snorri
líka af þvílíkri alúð, dugnaði og samviskusemi að leitun mun vera
á öðru eins. Skólinn hafði gott leikfimihús næstum frá byrjun og
árið 1960 var sundlaugin fullgerð og tekin í notkun. Bættist sund-
kennslan þá við störf Snorra, en raunar hafði hann þá um árabil
kennt sund á vornámskeiðum í Seljavallalaug. Sú kennsla fluttist að
Skógum eftir að laugin kom þar og kenndi Snorri flestum börnum
og unglingum úr Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu
austanverðri upp frá því sund á hverju vori. Stóðu þessi námskeið
oft alllangt fram á sumar. Jafnframt íþróttum kenndi hann líka
smíðar við Héraðsskólann og einnig leikfimi, sund og handmennt
við barnaskóla sveitarinnar eftir að hann var reistur í Skógum.
Margs væri hægt að minnast frá löngum og farsælum starfsferli
Snorra Jónssonar í Skógum. Hann reyndist alltaf frábærlega
traustur og áhugasamur að hverju sem hann gekk. Gott þótti mér
að vinna með honum og alltaf tók hann þvi ljúflega, þegar ég
kvabbaði á honum um ýmis aukastörf, sem í þá daga voru lítið sem
ekki borguð. Var þá sama hvort um var að ræða íþróttamót,
kappleiki, sundkeppnir, iþróttasýningar á árshátíðum, gróður-
setningarstörf í skógrækt skólans, gönguferðir með nemendum til
fjalls eða fjöru, skólaferðalög og sitthvað fleira. Alltaf var Snorri
boðinn og búinn til að hjálpa til og vera með í stóru sem smáu, svo
að skólastarfið mætti vera sem fjölbreytilegast og ganga sem allra
best í þágu nemenda, enda naut hann mikillar hylli þeirra og
virðingar.
Það er mikið lán að fá að vinna með samstarfsmönnum á borð
við Snorra Jónsson og fyrir þetta samstarf vil ég á merkum tíma-
mótum þakka honum af alhug. Leyfi ég mér líka að flytja honum
þær þakkir í nafni skólans og efast ekki um að undir þessar þakkir
Goðasteinn
101