Úrval - 01.09.1976, Side 42
40
URVAL
Áhrifaríkasta dulmálið hennar er
þó kannski án orða. Sjái hún unga
konu minna klædda en velsæmið
krefst, og sjái hún líka að pabbi
horflr á hana og það með velþóknun,
skammast hún ekki eða kemur með
meinlegar glósur, eins og flestar
eiginkonur. Hún treystir dulmálinu
sínu og raular bara upphafslínuna úr
söngnum fræga Tom Dooly, þar sem
textinn hljóðar svona: ,,Hang down
your head, Tom Dooley” (drjúptu
höfði, Tom Dooley).
Ef pabbi tekur ekki viðvöruninni
og heldur áfram að njóta útsýnisins,
raular mamma aðra línu úr sama
sögn, þar sem textinn er þessi: ,,Poor
boy, you’re going to die...” (nú er
komið að dauðastundinni, vesl-
ingur).
Fyrir mörgum, mörgum árum,
fann mamma upp „óbeinu játning-
una. ’ ’ Heimspeki hennar er á þá leið,
að játning sé góð fyrir sálina, en geri
ekki mikið fyrir sjálfsálitið. Vandinn
er þess vegna þá að játa sekt sína á
þann hátt, að engum réttlátum
manni detti í hug að telja mann
sekan í raun og veru.
Mamma hefur til dæmis þann
ávana að týna gleraugunum sínum.
Þegar hún kemst að því að þau em
týnd, segir hún: ,,Þetta er nú engum
að kenna nema mér,” — um leið og
hún leitar undir koddanum sínum,
dauf í dálkinn. „Þegar maður er nú
giftur manni með svona einkennilega
kímnigáfu, ætti maður að hafa vit á
að geyma gleraugun sín á öruggum
stað.” Hún axlar byrðina, og lætur
hana renna af sér.
Ég hélt að mamma hefði fundið
upp óbeinu játninguna, þar til ég
komst að því hvað hún er algeng hjá
fólki, sem er mikið í fréttunum.
Frægt fólk notar hana mikið. (,,Ég
kennni sjálfum (sjálfri) mér eingöngu
um að hjónaband okkar fór út um
þúfur. Ég var ekki nógu þroskaður
(þroskuð) til að þola æðisköstin
hennar (hans). ”). Stjórnmálmönn-
um leikur óbeina játningin á tungu.
(„Þetta er mér að kenna — ég hefði
átt að vita að undirmenn mínir réðu
ekki við þetta.”)
Þótt ég sé aðeins byrjandi í notkun
óbeinna játninga, hef ég þó lært
hvernig ég á að biðjast afsökunar,
þegar ég drep á bílnum við gatnamót
og maðurinn minn gefur mér illt
auga: „Bölvaður klaufaskapur er
þetta hjá mér — að gleyma því alltaf
að þú fórst ekki með bílinn í stillingu
fyrir hálfum mánuði eins og þú áttir
að gera...”
Oft segir mamma söguna af sér og
yngri bróður hennar, Irving. Mamma
hefur alltaf verið að gefa Irving
eitthvað, einkum góð ráð. Þegar
hann var orðinn fullorðinn, ákvað
mamma eitt sinn að hjálpa honum
að vinna fé í hestaverðhlaupi.
Eina nóttina dreymdi mömmu,
samkvæmt sögu hennar, að maður
með fjaðraskraut á höfði veifaði til
hennar. Hún var enginn óvaningur
að ráða drauma (hafði tvisvar drukkið
te með sígaunakonu). Hún fór yflr