Úrval - 01.09.1976, Side 68

Úrval - 01.09.1976, Side 68
66 URVAL valdi hins sterkari, og því endalok hinnar gömlu Evrópu. Hann var í rauninni hættulegur maður, alinn af hættulegri þjóð, sem hafði steypt sér út í þá hættulegu tilraun sem stjórnmálalegt frelsi var. Auðvitað sjá Bandaríkjamenn ekki Benjamín Franklin í þessu ljósi. í augum þeirra er hann bara hann ,,Ben gamli” góðlegur og gaman- samur. En samt er sannleikurinn sá, að ,,Ben gamli” var að minnsta kosti að nokkrú leyti sköpunarverk stjórn- málasnilli og áróðurs, sköpunarverk, sem hann var sér sjálfur meðvitandi um, enda auglýst og kynnt af höf- undi þess tií þess að gera hinn ameríska málstað áhrifaríkari erlend- is. Þessi ,,mynd” heppnaðist svo vel, að hún hefur orðið eign hverrar kyn- slóðarinnar af annarri og árangurinn hefur svo orðið sá, að við sjálf emm svo Iík Ben Franklin, að við verðum að grípa til sjálfskönnunar til þess að skilja hann. Franklin hefur átt sinn þátt í því að móta bandaríska skapgerð og þjóðareinkenni fremur en nokkur annar einstaklingur. Ef til vill er það einmitt þess vegna, að við leggjum áherslu á hina óbrotnu hversdagslegu eiginleika hans, vegna þess að það eru einmitt þeir þættir í fari okkar sjálfra, sem okkur líkar best við. MÓTSAGNAKENND SKAPGERÐ. Hinn hversdagslegi, óbrotni þáttur skapgerðar Franklins er sannur, en við látum hann skyggja algerlega á aðra mjög flókna þætti skapgerðar hans, svo flókna og margbrotna, að slíkt er ofviða ímyndunarafli okkar. Sem dæmi um slíkt mætti nefna, að þegar 500 félög fræði- og vísinda- manna um víða veröld stóðu fyrir alþjóðlegum hátíðahöldum árið 1956 í tilefni þess, að 250 ár voru þá liðin frá fæðingu Franklins, varð að skipta hátíðahöldunum í tíu aðskilda þætti sem hér segir: 1. vísindi, uppflnn- ingar og tækni. 2. stjórnmál. 3. menntun og náttúrurannsóknir. 4. fjármál, vátryggingar, verslun og iðnað. 5. fjölmiðlamálefni. 6. prent- un, auglýsingar og grafiskar listir. 7. trúarbrögð, bræðrafélög og húm- anisk ftæði. 8. læknislist og opin- bera heilsugæslu. 9. landbúnað. 10 tónlist og skemmtanir. Framlag hans á sviði hreinna vísinda gerði hann að Newton 18. aldarinnar, en það hefur verið gert svo lítið úr því framlagi, að aðeins er minnst tilrauna hans með eldingar og flugdreka, vegna þess að það er auðveldast að skilja þær. Hann hefur einnig verið gerður að fremur rólynd- um kaupsýslumanni og auglýsinga- stjóra, enda þótt hann hafi verið hættulegur byltingarseggur, að minnsta kosti í augum breta. Það var einmitt sá óróavekjandi eiginleiki hans, sem fann hljóm- grunn hjá hinum órólegu frökkum áttunda áratugs átjándu aldar. Þeim hafði birst svipur frá framtíðinni. I þessari hetju sinni sáu þeir óbrot- inn og göfugan landnema, gáfaðan mann, sem lét stjórnast af rödd rökvísinnar og sanngirninnar, en jafnframt því dugmikinn baráttu- mann frelsins, sem ,,þreif elding- una af himninum og veldissprotann af harðstjórunum.” Þeir skynjuðu. að þetta var nátengt þeirra eigin aðstæðum. Leyndardóm heimspekilegrar afstöðu Franklins sjálfs má finna í þeim sérstaka skilningi, sem hann lagði í staðreyndadýrkun hinnar bresku heimspeki, sem þá var ríkj- andi (sem lagði áherslu á, að menn
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.