Úrval - 01.09.1976, Page 72

Úrval - 01.09.1976, Page 72
70 kvæmt eðli hans að segja í afsök- unarskyni: ,,Ég gat ekki ráðið við atburðarásina,” eða ,,Ég var bara að hlýða skipunum.” Hann var fyrsta dæmið um hið athyglisverða banda- ríska fyrirbæri, „einsmanns meiri- hlutann.” En það var samt enn þýðingar- meira, að Franklin var fyrsti stjórn- málamaðurinn, sem hafði heildarhag allrar þjóðarinnar að leiðarljósi frem- ur en hinna einstöku nýlendna. Tveim áratugum á undan upphafi amerísku byltingarinnar fann hann upp hið tvöfalda stjórnkerfí fylkis- stjórnunar, sem skyldi svo tengjast alríkisstjórnun og lúta henni. Eftir að frelsisstríðinu lauk, kom hann í veg fyrir, að Stjórnarskrárþingið í Philadelphiu leystist upp. Smærri fylkin vildu fá jafna tölu fulltrúa á þjóðþinginu á við hin stærri. En stærri fylkin vildu, að tala fulltrúa hinna einstöku fylkja á þjóðþinginu grundvallaðist á íþúatölu hvers fylkis. Franklin átti frumkvæðið að þeirri málamiðlun, sem er enn við lýði, það er að öldungadeild þjóðþingsins er skipuð samkvæmt fyrri hugmyndinni ÚRVAL en fulltrúadeildin samkvæmt þeirri síðari. Þegar Franklin dó árið 1790, var hann orðinn ástsælasti maður veraldarinnar á sviði opinbers lífs. Franska þjóðþingið syrgði hann opin- berlega í þrjá daga samfleytt. Carl Van Doren ævisagnahöfundur lýsti megininntaki lífs hans með þessum orðum: ,,Hugur og vilji, hæfileikar og list, styrkur og lipurð, kxmni- gáfa og göfgi og persónutöfrar, allir þessir þættir sameinuðust í honum, likt og Móðir Náttúra hefði verið mjög eyðslusöm og hamingjusöm, þegar hann var mótaður.” Ben lýsti þessu jafnvel betur í þeirri grafskrift, sem hann samdi sjálfum sér til handa áunga aldri: „Líkami B. Franklins, prentara, (líkt og spjöld gamallar bókar, sem innihaldið hefur verið rifíð úr, rúið letri og gyllingu) liggur hér, fæða handa ormum. En verkið mun ekki glatast, því að það mun (eins og hann trúði) birtast að nýju í nýrri og glæsilegri útgáfu, endurskoðað og leiðrétt af höfundi þess. ’ ’ Maður nokkur á ferðalagi í Maine átti í basli með að fínna rétta veginn til Boothay Harbor. Að lokum stansaði hann og kallaðir til bóndasem vann á akri þar skammt frá: ,,Áttu heima hér?” Maðurinn á akrinum svaraði honum varfærnislega að svo væri og útskýrði fyrir honum hvernig hann ætti að fínna brúna og komast út á hraðbrautina. ,,En ég hef ekki farið yfír neina brú,” maldaði ferðalangurinn 1 móinn. Bóndi dró dálítið seiminn og sagði svo: , Jæja, ef þú hefur ekki farið yfír neina brú, þá ertu alls ekki hérna og þarft engar áhyggjur að hafa.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.