Úrval - 01.09.1976, Page 79
KJARNORKUTILRA UNAAKURINN
77
að afkvæmi geisluðu jurtanna höfðu
tilhneigingu til þess að mynda
runna, en slíkt er mjög mikilvægt,
svo að unnt sé að uppskera tómatana
með hjálp véla. Þetta varð aðalmark-
mið tilraunarinnar.
Nú þegar er hægt að greina vissan
árangur af þessum tómattilraunum.
Þessi vilta jurt er orðin mjög vel hæf
til ræktunar í stórum stíl á tómatökr-
um, og hún er mjög heppileg fyrir
uppskeru með hjálp véla. Hver
teinungur endar í klasa, sem minnir á
klasana á sólberjarunnum. Sumir
runnarnir gáfú af sér 600—800
tómata, sem hafa góða mótstöðu
gegn sjúkdómum. Þyngd einstakra
tómata nær allt að 30 grömmum.
Fræjum tómata, sem ræktaðir eru á
þessum kjarnorkuakri, mun verða
dreift meðal sovéskra jurtaræktunar-
stöðva til frekari tilrauna þar.
Annað tómatafbrigði, dvergtrébol-
urinn, á einnig tilveru sína þessum
gammageislaakri og þakka. Nú nær
hann allt að 25 sentimetra hæð, en sú
stærð hentar best til véluppskeru.
Þessi hæfílega stærð náðist fram með
geislun.
Tilraunirnar á þessum kjarnorku-
akri sýna hæfni gammageislunarinn-
ar til þess að fá fram verðmæt, ný
afbrigði af jurtum, sem em heppi-
legar til hagnýts vals og hættulausar
fyrir fólk.
KRAFTAVERK AF VÖLDUM
KJARNORKUNNAR.
Shcherbakov sýndi okkur tvö bygg-
öx, sem voru mjög ólík. En þau
höfðu samt þróast af sama afbrigð-
inu, Moskovsky-121. Það var geislun,
sem hafði valdið því, hversu ólík þau
voru. Með því að geisla jurtina á
vissum þróunarstigum hennar tókst
vísindamönnunum að framkalla
lengri öx. Upphaflega hafði lengd
axanna verið 9 sentimetrar að meðal-
tali, en hún varð 14 sentimetrar hjá
hinum geisluðu afbrigðum og hjá
sumum einstaklingum allt að 17
sentimetrar, og voru miklu fleiri fræ í
lengri öxunum.
Ástæða er til að nefna aðra tilraun.
Lorch-kartöflurnar hafa til að bera
mikið næringargildi, en þær hafa
litla mótstöðu gegn veirunni X.
Nokkrar jurtanna voru geislaðar í
nokkra daga, en aðrar fengu aftur á
móti enga geislun. Niðurstaðan varð
sú, að allar ógeisluðu jurtirnar
smituðust af veiru þessari, en aðeins
helmingur hinna geisluðu. Vísinda-
menn eru nú að reyna að komast að
ástæðunni fyrir þessu.
Kjarnorkan er geysilega verðmætt
tæki í höndum jurtaræktenda. Þess
vegna hefur gammageislaakurinn
orðið eins konar rannsóknarstofnun
fyrir sovéska vísindamenn. Þar er
vettvangur framvarðasveita á sviði
vals hinna ýmsu einstaklinga og
tegunda, einnar elstu vísindagreinar
mannkynsins.
★