Úrval - 01.09.1976, Qupperneq 119
HALDIÐ YKKUR GRÖNNUM — TIL FRAMBÚÐAR
117
þolraunina ekki skemur en tvö ár og
haldið þuriga sínum á því stigi, sem
tryggir heilbrigði og aðlaðandi útlit.
Við álítum, að aðferðir okkar geti
orðið of þungu fólki að liði.
Besta leiðin til þess að tileinka
sér nýtt hegðunarmynstur er að hluta
það niður í litla þætti," sem maður
ræður við og fást við þá hvern af
öðrum í smááföngum, líkt og maður
lærir að aka bifreið. Þú verður
stöðugt að hafa eftirlit með áti þínu
og áthegðun og stjórna því. Þetta
kann að reynast svolítið leiðigjarnt,
en viljirðu, að aðferðin gagni þér,
verðurðu að taka hvert skref alvar-
lega. Mundu, að þetta er ekki
matarkúr, sem nota skal, hætta við,
og taka upp aftur.
1. SKRIFAÐU HJÁ ÞÉR, HVAÐ ÞU
BORÐAR.
í fyrsta lagi skaltu skrifa hjá þér
allt, sem þú lætur inn fyrir þínar
varir — hverja sneið af steiktu
svínsfleski, hvern sopa, jafnvel hverja
tyggigúmíplötu. (Einu undantekn-
ingarnar: te, svart kaffí og vatn). Með
þessu móti er ekki fyrst og fremst
verið að komast að því, hversu
margra hitaeininga þú neytir heldur
hverjar átvenjur þínar eru.
Þú skalt einnig skrifa hjá þér svör
við þessum spurningum: Hvenær
borðarðu? Hversu snemma að degin-
um byrjarðu? Hversu seint á kvöldin
hættirðu? Hversu oft færðu þér snarl
á milli mála? Hvar borðarðu, við
matborðið eða á gangi? Með hverjum
borðarðu? Borðarðu.meira, þegar þú
ert ein? Skrifaðu niður athugasemdir
þínar innan 15 mínútnafrá því að þú
borðar.
Þú verður kannski hissa og jafnvel
hneyksluð, þegar þú gerir þér grein
fyrir því, hve mikið og hve oft þú
borðar. En reyndu ekki að draga úr
neyslunni með því að sleppa úr
máltíðum. Ef þú eykur þörf líkama
þíns fyrir fæðu, verðurðu veikari fyrir
þeirri freistingu að fá þér aukabita,
sem fljótlegt er að borða, svo sem
sælgæti.
Náðu fullu valdi á þessu ,,bók-
haldi”. Þú ættir ekki að færa þig upp
á næsta þrep, fyrr en þér hefur tekist
slíkt sjö daga í röð eða lengur, án þess
að gera neinar meiriháttar skyssur.
Og svo verðurðu að halda ,,bók-
haldi” þínu áfram á komandi vikum
og bæta þá við upplýsingum til
viðbótar.
2. HAFÐU FASTA REGLU Á MAT
MÁLSTÍMUM ÞlNUM.
Þú verður að borða þrjár full-
komnar máltlðar á dag og fá þér
aukabita tvisvar sinnum, hvorki oftar
né sjaldnar. Byrjaðu máltíðir þínar
á fastákveðnum tímum, morgunverð
á tímabilinu frá kl. 7 til 9:30 f.h.,
hádegismat milii klukkan 12 og 14
og kvöidmat milli klukkan 18 og
20:30. Borðaðu hvað sem þér sýnist.
svo framarlega sem þú lýkur því í
einu iagi. Þú mátt fá þér aukabit-
ana þína að morgninum, síðdegis
eða að kvöldi, eftir því sem þú kýst
helst. En ákveddu hvaða tvo af