Úrval - 01.03.1982, Side 10
8
ÚRVAL
Phelps í skólaslitaræðu sinni: ,,Þó að
ég hafí að mestu leyti verið í skóla frá
því ég var þriggja ára er ekki til sá
nemandi í fyrsta bekk sem ekki gæti
kennt mér eitthvað.''
Dag nokkurn átti ég að tala um
snáka í skóla sem þann sama morgun
hafði fengið bóaslöngu, metra á
lengd, kallaða Júlíus Squeezer,
lánaða hjá stofnun sem lánar út dýr.
Ég fékk hana lánaða fyrir fyrir-
lesturinn og geymdi hana þar til
síðast. ,,Þið megið bara ekki gleyma
að vera hlýleg og góð við hana,”
sagði ég við nemendurna um leið og
þeir létu hana ganga á milli sín.
Börnin klöppuðu henni samvisku-
samlega og sögðu henni hvað þau
væru hrifin af henni.
Þegar slangan var aftur komin í
búrið spurði ég nemendurna hvað
þeim fyndist um slöngur núna. Þeir
nefndu hve glansandi hún væri,
hvernig hún þrýsti á móti ef henni
var strokið og hve litirnir væru skærir,
Enginn minntist á að hún væri köld,
þvöl og hrollvekjandi og allt annað
sem fólki dettur í hug þegar það
hugsar um snáka.
Ég man sérstaklega eftir lítilli
stúlku sem mótaði í orðum það sem
gerist þegar hleypidómar mæta stað-
reyndum. ,,Eg get ekki almennilega
talað um snáka því að Júlíus er ekki
venjulegur. Hann er — já, hann er
Júlíus! ’ ’ Kannski er þetta lykillinn. Ef
þú þekkir persónuleika skepnu er
mikið af ótta þínum þar með horflð.
Það er gaman að fá bréf frá
börnum, jafnvel þótt maður verði að
lesa meininguna milli línanna. Barn
sem ég hafði þekkt nokkuð lengi
skrifaði eftirfarandi: ,,Kennarinn
okkar segir að við eigum að skrifa
einhverri mikilvægri persónu og ef
við þekkjum ekki einhverja mikil-
væga þá einhverri sem er forvitnileg
og þá datt mér þú í hug. Þekkirðu
ekki einhvern?”
Bæði sem ræðumaður og í fyrra
starfi mínu sem starfsmaður fjölfræði-
þjónusm við lesendur finn ég að for-
vitni barna sýnir mér sífellt heiminn
frá nýjum sjónarhornum.
„Kennarinn minn sagði mér að
skrifa þér til að vita hvort þú gætir
svarað fyrirokkur spurningu. En hún
er svona. ,,Ef þyngdarlögmálið
dregur mann niður að jörðinni hvers
vegna vex maður þá upp? ’ ’
, ,Hefur kötturinn níu líf? Okkar er
nýdáinn og það er í fyrsta skipti.
Hvernig stendur á því?”
,,Hvað eru mörg bein í fíl?”
(Fjöldinn getur verið mismunandi en
oftast eru þau um 216).
,,Ef einhver villist í Okefenokee
mýrinni, hvað á hann þá að gera?
Sendu svar strax því mér liggur á
því.”
,,Hvað hugsa kýr á meðan þær eru
bundnar á bás alla nóttina? ’ ’
,,Mig langar að vita hvernig hin
fögru form snjókristallanna verða
til.”
Móðir fjögurra ára barns sem vissi
ekki hverju svara átti bað mig að leysa